Síða 1 af 1
2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 24.sep 2013, 10:04
frá Bjarni Ben
Sælir herramenn (og frúr)
Hver getur sagt mér hvaða breytingar eru gerðar á olíuverki í 2,8 pajero frá '95 til '97?
Er semsagt að setja 97árg af mótor í '95 pajeroinn minn og það er einu rafmagnsplöggi ofaukið á 97 olíuverkinu.
Í hverju liggur munurinn?
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 24.sep 2013, 20:34
frá Jóhann
Er það ekki bara fyrir kódaðan likil
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 24.sep 2013, 22:10
frá Bjarni Ben
Fékk þær upplýsingar áðan að þetta væri jú líklega þjófavörn. Sjáið hérna muninn á olíuverkunum. Kann einhver að svindla á þessu?
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 07.okt 2013, 22:16
frá Bjarni Ben
Hva, veit þetta enginn? :)
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 07.okt 2013, 22:36
frá HaffiTopp
Brýtur varlega plastið utan af þessu og skemmir þarna einhverja lóðsnertu eða álíka. Eða lætur einhverja víra snertast.
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 07.okt 2013, 22:38
frá ellisnorra
HaffiTopp wrote:Brýtur varlega plastið utan af þessu og skemmir þarna einhverja lóðsnertu eða álíka. Eða lætur einhverja víra snertast.
Það er einmitt aðferðin sem ég hef heyrt líka, nema ég veit ekkert hvað er inní þessu gúíi :)
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 07.okt 2013, 22:54
frá JLS
Þetta svarta gúfí er bara drasl, á annari myndinni sést ádrepara segulrofinn á olíuverkinu en á hinni myndinni yfirbyggður segulrofi, inní þessu gúfi er prentplata sem tkur við einhverjum boðum og opnar/lokar segulroafanum. Það er ekkert annað að gera en að mölva þetta með hamri og skrúfjárni af, og ef þið eruð smeikir við að skemma eitthvað á olíuverkinu þá setjið þið eitthað á milli blokkar og gúfís :) En já undir þessu svarta boxi er einfaldlega segulrofi eins og á hinu verkinu.
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 07.okt 2013, 23:35
frá HaffiTopp
Reyndar er erfitt að átta sig á myndunum þar sem efri myndin (nýrra verkið) er ekki alveg nógu neðarlega. Þá sér maður ekki hvort það sé sama tengið þarna neðst og það sem sést þarna á eldra verkinu. En það er allavega aukatengi þarna ofan á verkinu aftarlega. Ekki nógu góð lýsing hjá JLS um hvaða gúfí sé drasl og hvaða gúfí eigi að brjóta til að óvirkja þjófavörnina.
Re: 2,8 pajero olíuverkspælingar
Posted: 08.okt 2013, 12:13
frá Bjarni Ben
HaffiTopp wrote:Reyndar er erfitt að átta sig á myndunum þar sem efri myndin (nýrra verkið) er ekki alveg nógu neðarlega. Þá sér maður ekki hvort það sé sama tengið þarna neðst og það sem sést þarna á eldra verkinu. En það er allavega aukatengi þarna ofan á verkinu aftarlega. Ekki nógu góð lýsing hjá JLS um hvaða gúfí sé drasl og hvaða gúfí eigi að brjóta til að óvirkja þjófavörnina.
Ég gat ekki séð að það sé neinn munur á neinum tengjum á þessu, fyrir utan að þetta aukatengi er þarna á nýrra olíuverkinu.
En er JLS alveg klár á því að maður þurfi ekki að tengja neitt eða gera neitt nema nota AH á þetta? (þá á ég við Aflið og Heimskuna :) )