Síða 1 af 1
faersla a framhasingu Patrol
Posted: 17.sep 2013, 16:22
frá thorjon
Jaeja kaeru felagar, hjalpid nu elliaerum felaga sma :) hver var aftur astaedan fyrir ad faera framhasinguna fram (onnur en midjusetja m.v. kanta) ? Thad er thegar verid er hvort sem er ad haekka bilinn a fjodrun. Einnig virdist voda lodid hvort faera eigi 2 cm eda upp i 6cm.
Eg er ad haekka garminn um 10cm. Og mida vid ad koma max 42 tommu undir
Kvedja : Thorjon
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 17.sep 2013, 17:28
frá jongud
Hásingin er yfirleitt færð framar til að koma stærri dekkjum fyrir án þess að þurfa að skera úr hvalbaknum. Það er varla fræðilegur möguleiki að koma 44-46 tommu dekkjum fyrir undir bíl án þess að færa hásinguna fram. Núorðið kemur fyrir að menn lengi bretti til að færslan verði snyrtilegri.
Hinsvegar er ekki hægt að færa mjög langt fram án þess að þurfa að færa stýrismaskínuna líka framar. Og þá eru sumir líka farnir að lengja grindina.
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 17.sep 2013, 17:51
frá thorjon
Og hvad er madur ad "sleppa med" I faerslu adur en huga tarf ad styrismaskinuveseni ? Gleymdi ad minnast a ad eg fekk mer aegisarm fyrir thessa haekkun.
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 17.sep 2013, 18:57
frá Hagalín
Tomma ætti að duga þér.
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 23.sep 2013, 13:45
frá jongud
thorjon wrote:Og hvad er madur ad "sleppa med" I faerslu adur en huga tarf ad styrismaskinuveseni ? Gleymdi ad minnast a ad eg fekk mer aegisarm fyrir thessa haekkun.
Það þarf ekki að færa maskínuna nema ef maður færir hásinguna mikið
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 23.sep 2013, 15:07
frá jeepson
Hvað er hægt að færa mikið án þess að pæla í maskínuni og án þess að það fari að hafa einhver áhrif á stýrisbúnaðinn yfir höfuð??
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 23.sep 2013, 18:22
frá jongud
jeepson wrote:Hvað er hægt að færa mikið án þess að pæla í maskínuni og án þess að það fari að hafa einhver áhrif á stýrisbúnaðinn yfir höfuð??
Nú seturðu mig á gat.
Það er ansi langt síðan ég skreið undir breyttan Patrol.
En ég mundi skyndilega eftir því að stundum hafa menn þurft að færa þverstífufestinguna líka.
Ég er bara ekki með það á hreinu hvað maður getur fært mikið fram án þess að byrja að hræra í þessu.
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 23.sep 2013, 19:02
frá sukkaturbo
Sæll Gísli skoðaði þetta einhvern tíman og var 6 cm í lagi fannst mér kveðja guðni
Re: faersla a framhasingu Patrol
Posted: 24.sep 2013, 18:52
frá jeepson
Já mér datt nú í hug að stífan þyrfti að fara með :)