Síða 1 af 1

Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 27.aug 2013, 21:58
frá Golli
Vitiði hvar er best að láta skipta um hjólaegur í svona hásingu, er útá landi og var að pæla hvort ekki væri hægt að mæta bara með höbbin og láta pressa nýja legur í., vitiði hvaða snillingar græja svona hluti á viðráðanlegu verði :)

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 27.aug 2013, 22:53
frá jeepcj7
Sæll þú slærð bara gömlu slífarnar úr og þær nýju í með mjúkum meitli eða úrreki sjálfur það þarf ekki pressu í svona aðgerð bara slá þetta jafnt niður.

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 28.aug 2013, 10:09
frá jongud
það er líka gott að hita nafið lítillega (skella því á eldunarhellu ef þú átt slíka eða hefur aðgang að) og setja leguslífarnar í frysti og þá gengur þetta mun auðveldara fyrir sig.

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 29.aug 2013, 10:04
frá Golli
Takk fyrir þetta Drengir:)

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 29.aug 2013, 10:53
frá villi58
jongud wrote:það er líka gott að hita nafið lítillega (skella því á eldunarhellu ef þú átt slíka eða hefur aðgang að) og setja leguslífarnar í frysti og þá gengur þetta mun auðveldara fyrir sig.

Ekki verra að hafa pressu, mæli ekkert sérstaklega með hamri og meitli gæti orðið slys.

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 29.aug 2013, 14:34
frá Narfi
svo er líka gott að nota gömlu slífina til að lemja nýu slífina í og alltaf betra að nota nylonhamar eða eitthvað álíka,eða bara stórt skrúfstykki.

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 29.aug 2013, 14:35
frá Narfi
Hef reyndar aldrei gert þetta í Patrol ;-)

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 29.aug 2013, 23:58
frá Sævar Örn
Ég er sammála ofangreindum aðferðum, ég hef aldrei pressað svona legur í, enda þarf engin átök til að koma slífunum úr og í

Re: Skipta um Hjólalegur í patrol framhásingu 3.3 ´88

Posted: 30.aug 2013, 10:51
frá JeepKing
Fyrir sérstaka áhugamenn um legur og þá sem hafa ekkert að gera þá eru herna leiðbeningar um hvernig á að skipta um kóniskar keflalegur.... klukkutíma langt video með herslutölum og allt :D
nokkrir góðir punktar þarna á ferðinni frá Timken..

http://workshop.search-autoparts.com/_Everything-You-Never-Knew-About-Tapered-Bearings/blog/5791109/31710.html?setId=118606