Síða 1 af 1

Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 14:13
frá hobo
Hvernig næ ég þessum kössum í sundur? Er einhver kúnst við það?
Eru úr LC 70.

Image

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 14:52
frá Gunnar00
Losa alla boltana. Sidan bara hamar og skrufjarn

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 15:00
frá hobo
Hélt það líka, en mér finnst eins og það sé einn bolti eftir og hvergi finn ég hausinn.
Þarf þá örugglega ekki að opna neitt inn í millikassann til að komast að einhverju?

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 15:25
frá jeepcj7
Ef þetta er eins og í 60 cruisernum þá þarf að taka annað hvort lokið aftan af millikassanum eða aftari hlutann af millikassanum og þar er stór ró sem kemur á öxulinn afturúr gírkassanum sem þarf að losa er 36mm að stærð í 60 cruiser.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 15:33
frá hobo
Já ég var einmitt búinn að opna þetta lok aftan á millikassanum og sjá stóra ró.
Skal kíkja betur á það.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 17:05
frá hobo
Búinn að losa stóru rófuna, ekkert skárra, allt pikkfast.
Er búinn að losa 4 bolta með 17mm haus en grunar og einn sé eftir, þá hugsanlega losaður inn í millikassanum.

Er einhver með fleiri vísbendingar þarna úti?

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 18:31
frá birgiring
Ef ég man rétt þá þarf að rífa kassann til að komast að seinasta boltanum sem festir hann við aðalkassann.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 20:14
frá hobo
Þá er þetta komið á hreint, 4 boltar inn í millikassanum. Samtals 8 boltar.
Ég hefði getað hamast í alla nótt með meitilinn á samskeytunum ef ég hefði ekki opnað kassann.
Stóru róna þurfti ekki að losa þar sem gírkassaöxullinn tengist millikassanum með rilluhulsu. Hrólfur skuldar mér semsagt tæpann 2000 kall fyrir nýja 36mm toppnum sem ég keyti mér áðan. En ég ætla nú samt ekkert með það í innheimtu...

Smá forvitni, hvað er þetta sem er lengst hægra megin á millikassanum á myndinni? Læsing á millikassanum, glussadæla, eða hvur fjandinn?

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 09.aug 2013, 21:26
frá birgiring
Hægra megin á millikassanum er loftmembra sem setur framdrifið á eða af.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 00:44
frá ellisnorra
Hvað ætlaru að gera við svona dót? :)

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 08:44
frá hobo
Losa mig við það, samt erfitt að sleppa svona Toyota gulli..

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 09:29
frá jongud
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt, ég hélt að LC70 væri með samskonar millikassa og Hilux þ.e. með úttakið beint afturúr.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 09:35
frá ellisnorra
Þessir kassar eru líka milli 20 og 30 cm (man ekki nákvæmlega) styttri en hilux kassarnir. Flott að mixa í stutta bíla :)
Framendinn á þessm kassa, planið sem kúpingshúsið boltast á er það sama og á 1kz og ég held að ég fari rétt með að þessi kassi heiti r151.

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 13:07
frá grimur
Gæti verið R151F, en líklegra samt að þetta sé R150F.
Ég kann ekki að sjá muninn utaná þessum kössum, en hlutföllin eru aðeins mismunandi, sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Toyota_R_transmission

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 10.aug 2013, 20:29
frá hobo
Svona til að vera á gráu svæði með auglýsingu á spjallsvæði, þá er millikassinn til sölu fyrir lítinn 10 þúsund kall.

En haldið þið ekki hilux millikassi passi aftan á þennan gírkassa?

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 11.aug 2013, 15:15
frá Startarinn
Smeltu mynd aftan af gírkassanum og sýndu okkur, mér þykir það samt ólíklegt. Svo er líka spurning hvort þú ert að tala um kassa úr 4cyl eða V6 bíl, þeir eru ekki eins

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 11.aug 2013, 15:27
frá hobo
Þetta er úr 4 cyl.

Image

Re: Ná gírkassa og millikassa í sundur.

Posted: 11.aug 2013, 15:52
frá Startarinn
Þetta er allavega allt öðruvísi en afturendinn á V6 kassanum
Það er 23 rillu öxull á V6 millikassa en 21 rillu á 4cyl