Síða 1 af 1
Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 11:00
frá hobo
Er búinn að láta hugann reika til að finna hentugt rafmagnstengi. Var að hugsa um að leggja rafmagn og loft frá loftdælukassa sem er á afturhleranum niður á stuðara, í staðinn fyrir að leggja það í gegn um hlerann.
Vantar semsagt ábendingar hvar væri hentug tengi að finna, þurfa auðvitað að þola smá bleytu og þola minnst 45 Amper. Þau þurfa að vera hönnuð til að fara í gegn um þil, og vera í nettari kantinum. Einnig þyrftu þau að vera með lok eða hettu þegar þau eru ekki í notkun.
Eftir smá googl, þá er ég að tala um eitthvað í þessum dúr.

Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 13:43
frá sukkaturbo
Sæll það fást rauð plast tengi í Bílanaust allavega í tveimur stærðum. Ég hef notað minnigerðina fyrir loftdælur og þá stærri fyrir spil. Lok fylgir þessu. kveðja guðni
Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 14:16
frá hobo
Ég held ég viti hvað þú meinar, en það eru ekki tengi sem festast í gegn um þil er það?
Þetta þarf að fara í gegn um stálkassa, og í gegn um stuðarann.
Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 14:31
frá jeepcj7
Það sem mér dettur helst í hug eru bara gömlu rafsuðukaplatengin sem voru allstaðar notuð við spil hér áður en rauðu tengin komu sem var/er stungið í og snúið.Ég veit ekki hvað svona camper tengi eins og myndin hjá þér er af þolir mikið rafmagn.
Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 16:30
frá Habbzen
Prufaðu vinnuvélaumboðin, mikið notað til að koma rafmagni uppá topp á vinnuvélum.
Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 17:39
frá hobo
Sjaldgæft að þau geri ráð fyrir svo miklum straum, þeir segja að 16A sé mjög algengt.
Ætli maður endi ekki bara í svona :)

Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 17:44
frá hobo
380V 32A tengill.
Hvað þolir hann mörg Amper á 12 Voltum?
(er ekki að hugsa um að nota þetta í alvörunni!!!)
Re: Leit af rafmagnstengi
Posted: 07.aug 2013, 20:23
frá Stebbi
hobo wrote:380V 32A tengill.
Hvað þolir hann mörg Amper á 12 Voltum?
(er ekki að hugsa um að nota þetta í alvörunni!!!)
Hann þolir sömu 32A á 12 voltum, engin breyting þar á.