Síða 1 af 1

Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 10:15
frá silli525
Segið mér snillingar hvar ég get fengið þetta ódýrast?. Kostar 195 þús í Kistufelli..............

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 10:59
frá jongud

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 13:39
frá silli525
Já ég verð að segja að það stóð í mér morgunmaturinn þega ég fékk þessar upplýsingar í morgun og ég er akkúrat að renna í gegnum ebay.co.uk núna, takk kærlega fyrir

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 14:31
frá Svenni30
Pabbi gamli borgaði 250kall fyrir túrbínu í oktavíu 2006. fékk hana á partasölu.
Hann borgaði þetta bara steinþegjandi og hljóðalaust, ég sagði honum að hann hefði verið tekinn ílla í rassgatið. Nei nei sagði sá gamli þær kosta yfir 500kall í umboðinu, túrbínan sem hann fékk kom úr bíl sem var keyrður 20þús.
Hægt að fá þetta miklu ódýrara á ebay.

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 14:52
frá silli525
Já einmitt, mig langaði bara að sjá hvort einhver vissi um ódýrari bínu hér á landi.Spurning hvort hægt sé að gera þetta upp hérna heima á stuttum tíma því ég gæti verið bíllaus í nokkra daga. Bínan er ekki hruninn ennþá bara komið hressilegt hátíðnihljóð í hana. .......

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 17.júl 2013, 23:43
frá JLS
Ég hef verslað bínur frá Framtak í þá 4 skoda bíla sem ég hef skift um túrbínu í. En þessar VGT túrbínur eru ögn öðruvísi en venjulegar því þær eru með einhverskonar spöðum sem stjórnar þrýstingnum en ekki hefðbundinn wastegate loka. Þessir spaðar vilja festast og .þá byrja mörg ævintýri, sniðugt að skoða svona áður en farið er í að skifta út bínunni, svo er sniðugt að senda þær í viðgerð á meðan þær eru í lagi, þá er skift um leguna og þéttingar og bínan sem ný fyrir mun lægri kostnað en ný.

Bara mín 2 cents

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 18.júl 2013, 09:42
frá silli525
Já takk fyrir það. Hvert er best að senda i viðgerð?

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 18.júl 2013, 12:28
frá geirsi23
Framtak/Blossi í hafnarfirði

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 18.júl 2013, 18:06
frá veddi.
JLS ertu þá að tala um nýrri bílanna ? 2010 til 2013 ? Veit allavegannaað í 2007 er hefðbundinn wastergate loki sem eimitt vill festast til dæmis ef bílarnir standa á veturnar.

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 18.júl 2013, 21:17
frá Raggi B.
Vá kostar ný túrbína í umboðinu 500þ ? Er þetta rétt ?

Ég frétti af því að þegar vinnufélagi minn hringdi í umboðið og spurði hvað eitt hedd kostaði í diesel bíl þá var svarið rúm 900þ. og í bensín bílinn var það um 400þ. (1600cc).

Veit ekki hvort það sé strípað hedd það fylgdi ekki sögu sölumannsins, en ég var viðstaddur þegar hann hringdi og hann spurði bara hvað hedd kostaði og fékk þessar tölur og gleymdi að spyrja hvað væri innifalið.

Er allt dýrt að versla í þessa bíla eftirá eða er það bara almennt með nýju diesel bílana hvaða tegund sem það heitir ?

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 19.júl 2013, 00:04
frá Grímur Gísla
Ég hef skift við þessa bílapartasölu. Það tók viku að fá pakkann. Þessi túrbína kostar tæpar 80 þús, úti - skattur um 10-12%

http://www.riedel-autorecycling.de/en/t ... 1374191869

Re: Túrbína í Skoda Octavia 2006 disel

Posted: 29.júl 2013, 05:39
frá íbbi
hafandi unnið lengi í varahlutadeild hjá umboði á sínum tíma og vitað hvað hlutirnir kosta frá framleiðendum bílana kemur svona mér ekki á óvart, m.v hvað ég hef afgreitt nýjar túrbínur fyrir þá finnst mér 200k fyrir nýja ansi lágt



lágt m.v hvað ég var vanur að sjá þær á þ.e.a.s, ekki að 200k væri lág upphæð