Síða 1 af 1

Burt með hvarfakút

Posted: 14.sep 2010, 20:01
frá HaffiTopp
..

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 14.sep 2010, 20:05
frá garnett91
Ef bíllinn er eldri en 1995 módel kemstu alveg upp með það ef ekki þá brýtiru bara innan úr honum það ætti ekki að mælast ef þú ferð með bílinn kaldann í skoðunn. :-)

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 14.sep 2010, 20:35
frá steinarxe
Það getur varla verið að maður eigi að fara með hann kaldann.Þegar ég var að baslast með lélega spíssa á hilux þá sögðú mér kunnugir menn að ég ætti að fara með hann sjóðheitann og nýsmurðann og helst standann aðeins fyrir utan hurðina hjá þeim. Það svínvirkaði og bíllin datt í 2,8 minnir mig en hafði verið í 6,5 og mörkin voru 3,0.

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 02:23
frá Freyr
Fara með bílinn sjóðheitan. Keyra hann í smá tíma eftir að hitamælirinn er kominn á eðlilegan vinnsluhita og þenja hann vel áður en farið er á skoðunarstöðina. Ef það dugar ekki er hægt að fara með bara örfáa lítra á bensíntanknum og hafa í því mjög hátt hlutfall af ísvara ;-)

Freyr

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 08:43
frá Járni
Munurinn með og án hvarfakúts er svo afgerandi að ef þú sleppur í gegn er það eingöngu heppni. Einhver svona brögð hafa mögulega smávægileg áhrif á mælinguna en ólíklegt að þau dugi til að ná gildunum niður í eðlilegt horf.

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 08:53
frá Hansi
Ég átti Pajeró þar sem hvarfakúturinn var tekinn úr sett rör í staðinn, og svo var hvarfakútnum bara skellt í fyrir skoðun, 4 skrúfur. Held það sé málið, þá áttu alltaf kútinn ef þú kemst ekki í gegn.
Kv Hans

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 09:52
frá HaffiTopp
..

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 10:21
frá Hansi
Ég var með Pajeró 35" 3,5L 2001 bensín og á honum er ekki skynjari fyrir aftan kútinn, það var að mér skilst ekkert átt við tölvuna. Ég held að tölvan leiðrétti sig upp að einhverju marki svo að það þarf ekki að "mappa" hana, er samt ekki viss, bíllinn var svona þegar ég fékk hann, og var svona líka þegar ég seldi hann, þar af leiðandi hef ég ekki viðmið á eyðslu.
En eins og hann var hjá mér þá var hann að eyða minnst 20L innannbæjar og 16L utanbæjar. Eyddi eitt sinn 22L á leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar í smá mótvindi og rigningu, þá seldi ég bílinn. Það er náttúrulega að keyra upp í móti að fara norður (Upp hnöttinn) enda eyddi hann "bara" 17L á leiðinni í bæjinn í þurru verðri og niðrí móti ;)
Kv. Hansi

Re: Burt með hvarfakút

Posted: 15.sep 2010, 20:17
frá Járni
Ef það er ekki skynjari fyrir aftan kútinn, skiptir það engu máli.