Síða 1 af 1
Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 15.júl 2013, 22:12
frá Grásleppa
Sælir. Er að taka upp bremsudælurnar að aftan hjá mér ('94 Patrol) og þarf að skipta úr stimplum, gúmmíum o.f.l. Er hægt að fá svona sett með öllu í einhverstaðar eða borgar sig bara að kaupa notaðar dælur í lagi þar sem þetta er til út um allt?
Re: Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 15.júl 2013, 22:26
frá snöfli
Viðgerðasett á €12,
http://www.teilesuche24.de/budweg/repar ... 7&at=11025Nýjar bremsudælur á €35. Þó að það kosti pening að ná þesus heim þá er þetta smáaurar. l.
Re: Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 15.júl 2013, 23:00
frá jeepcj7
Stál og stansar hafa verið sterkir í svona settum til að gera upp bremsudælur.
Re: Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 15.júl 2013, 23:19
frá Grásleppa
Prufa að hringja í Stál og stansa með morgninum, takk kærlega... var búinn að skoða svona sett á netinu en bíllinn þóknast mér ekki á búkkum og þar sem ég er búinn að rífa þær undan svo nenni varla að bíða. Skal pósta hérna inn hvað þeir hjá Stál og stönsum rukka fyrir svona sett ef þeir eiga það.
Re: Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 16.júl 2013, 12:54
frá Sævar Örn
stilling og ab varahlutir eiga líka slatta af svona gúmíum og stimplum ef þarf
Re: Uppgerðarsett fyrir bremsudælur.
Posted: 16.júl 2013, 13:40
frá Grásleppa
Já, Stilling rukkar ekki nema 6.000 fyrir stimpil og 3.000 fyrir stk af slífunum sem dælan gengur laus á, svo eru gúmmíin einhver 2-3.000. Get fengið 2 afturdælur notaðar í góðu lagi á 15.000 svo það er spurning um að kaupa þetta bara notað.