Síða 1 af 1

Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 16:20
frá silli525
Veit einhver hvort það er gerandi að pressa nýjar legur i framhöbbana á svona bílum og kannski hvar það er ódýrast að kaupa svona höbba?

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 18:28
frá Sævar Örn
ekki hægt að skipta um leguna, innri flötur legunnar er hluti af höbb stykkinu

kaupir nýjan höbb minnir að það sé ódýrast hjá poulsen eða AB, hringdu á alla staði

Svo brenni ég ytra byrðið af legunni í sundur og lem það þar til "höbbið" dettur í sundur, svo pressar maður bara hjólnáið(með felguboltunum) í nýja höbbið og þá erum við að dansa


Image


kannski er hægt að fá legu með felguboltadæminu á, þá er þetta náttúrulega voða þægilegt bara bolt on, en þannig hef ég ekki séð fyrir landcruiser þó það sé algengt í ammerísku bílunum

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 18:29
frá Sævar Örn
stykkið sem færa þarf á milli

Image

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 20:32
frá silli525
Sævar Örn wrote:stykkið sem færa þarf á milli

Image



Já þetta er einmitt það sem ég var að spá í, en ég fann complett dæmið með öllum boltum á ebay, kostar úti 32 þús +sendingarkostnaður

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 20:39
frá Óskar - Einfari
Vitið þið hvort að þetta er eins báðu megin? ég hef stundum verið að velta því fyrir mér að eiga complete hub til að skipta. Þetta er nefnilega smá vesen ef maður hefur ekki aðgang að pressu og þá er þægilegra að eiga bara tilbúið sett til að henda í. Reyndar get ég ekki hvartað undan endinguni á þessum legum.. ein fór í 130þ km og hin er komin yfir 150þ km og er ennþá að telja.......

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 21:04
frá silli525
Þetta hlýtur að vera eins báðu megin, það er þannig í Grandinum mínum allavega, Toyotu apparatið er ekki mín tegund var að skoða þetta í bíl föður míns sem er ekinn 140 þús og það var komið smá hljóð i legunna og ég reif þetta úr og þá var komið töluvert slag i hana

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 13.júl 2013, 21:10
frá olafur f johannsson
Já það eru einns legur hægri og vinstri í lc 120 og í hilux og það verður það að passa að boltarnir 4 séu í það er ekki hægt að setja þá í ef nafið er í leguni

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 14.júl 2013, 14:45
frá Cruser
Sælir félagar, framlegur eru eins hægri/ vinstri að framan en ekki aftan. Hef keypt þetta í Stillingu og hefur besta verðið verið þar, kemu allt með, semsagt bara sett, er bùinn að skipta út öllum hjólalegum í mínum bíl ekinn aðeins 90.000km á 38" hjólum. Þetta er ekki mikið mál ef maður kemst í pressu. Legurnar eru breiðar og þetta er mjög fast.
Gangi þér vel.
Kv Bjarki

Re: Hjólalegur i landcruiser 120

Posted: 14.júl 2013, 17:20
frá silli525
Já þakka svörin strákar, mig hlakkar mikið til að fara eiga við þetta......., mikið nær að eiga Grand og kaupa þetta komplett á smápeninga....