Síða 1 af 1

Stefnuljósa tremmi í Patrol!

Posted: 08.júl 2013, 09:11
frá Grásleppa
Sælir. Nú eru stefnuljósin hjá mér komin í einhvern trans! Lýsir sér þannig að þau virka bara alls ekki og hazzard ekki heldur, en stundum kemur blikkhljóðið en það skilar sér ekki í formi blikks út í perur, bara hljóðið. Er búinn að prufa að skipta um hazzard takkann þar sem mér skilst að stefnuljósin fari í gegnum hann en ekki lagaðist það þá...eru einhver relay annarstaðar sem stýra þessu?

Re: Stefnuljósa tremmi í Patrol!

Posted: 08.júl 2013, 12:27
frá sukkaturbo
Sæll ég man eftir öryggjum fyrir vinstri og hægri hlið stefnuljósa í einhverjum patrolnum sem ég hef átt þau eru undir mælaborðinu hægramegin og svo ef það er í lagi þá fer jörðin stundum til andskotans í afturendanum á þeim. En skoðaðu öryggin fyrst kveðja Guðni

Re: Stefnuljósa tremmi í Patrol!

Posted: 09.júl 2013, 02:53
frá Grásleppa
Jæja... búinn að finna útúr þessu. Þetta var samtvinnað vandamál, jarðtengingin fyrir afturljósin orðin léleg, eitt plögg fyrir annað stefnuljósið einnig, svo var brotið tengi fyrir einhvern pung eða relay fyrir ofan pedalana, sennilega blikk relay og eftir að hafa lagað þetta allt virkar þetta :)