Síða 1 af 1

2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 28.jún 2013, 23:06
frá Arni79
Sæli spekingar,

Ég er með ´98 2.8 Patrol sem er erfiður í gang.

Þegar hann er kaldur þá þarf ég að láta kertin hita sig lengi og halda gjöfinni um niður 1cm, þá hrekkur hann yfirleitt í gang. Ef ekki þá þarf að starta og starta og á endanum hrekkur hann í ganga með þykkum reik og látum..

Þegar hann er orðin heitur þá er hann yfirleitt nokkuð góður í gang, finnst samt að það þurfi að starta/snúa honum meira en eðlilegt er.

Það eru ný glóða kerti í honum.

Kannast einhver við svona vandamál og lumar hugsanlega á lausnum.

Kv,
Ketill

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 29.jún 2013, 06:18
frá ellisnorra
Þetta er soldið algengt finnst mér, ég veit um tvo svona bíla sem gera þetta, báðir y61 en ég þekki ekki orsökina samt.

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 29.jún 2013, 08:21
frá Navigatoramadeus
hljómar einsog forhitunin sé ekki í lagi ef hann er góður í gang heitur, búinn að athuga hvort glóðarkertin (öll) fái spennu í amk 10 sek eftir að svissað er á ?

röng glóðarkerti ?

það er nóg að 1-2 glóðarkerti séu ekki að fá nægilega spennu svo gangsetning verður erfiðari.

svissbotn bilaður.

relayið fyrir glóðarkertin með útfellingum á pólum.

ef það er ekki málið gæti verið málið að þjöppumæla gripinn, hvort leki upp eða niður með einhverju en það ætti þá að sjást talsverður reykur fyrstu mínúturnar úr pústinu ef hann blæs niður.

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 29.jún 2013, 12:46
frá jeepson
Navigatoramadeus wrote:hljómar einsog forhitunin sé ekki í lagi ef hann er góður í gang heitur, búinn að athuga hvort glóðarkertin (öll) fái spennu í amk 10 sek eftir að svissað er á ?

röng glóðarkerti ?

það er nóg að 1-2 glóðarkerti séu ekki að fá nægilega spennu svo gangsetning verður erfiðari.

svissbotn bilaður.

relayið fyrir glóðarkertin með útfellingum á pólum.

ef það er ekki málið gæti verið málið að þjöppumæla gripinn, hvort leki upp eða niður með einhverju en það ætti þá að sjást talsverður reykur fyrstu mínúturnar úr pústinu ef hann blæs niður.


Sammála.

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 29.jún 2013, 18:39
frá Gísli Þór
Ath glóðarkertin ef þau eru ok þá er þetta olíuverkið það þarf að stilla það og það get ég framkvæmt fyrir þig ef þú vilt.
kv Gísli

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 30.jún 2013, 00:33
frá Arni79
Takk fyrir góð ráð.

Ég ætla að nota helgina í að skoða glóaðakertin og það kerfi.

Er annars búin að lesa mig svolítið til um þetta og hallast að því að það þurfi að stilla olíuverkið. Þó hann sé töluvert betri í gang heitur þá er hann ekki alveg eðlilegur í gang þá, því beinast öll spjót að olíverkinu..

Gísli, ertu með símanúmmer sem ég get náð í þig í?

Kv,
Ketill

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 30.jún 2013, 17:27
frá Gísli Þór
8935815

Re: 2.8 Patol, erfiður í gang

Posted: 30.jún 2013, 23:03
frá solemio
Ventlastilla bilinn.var i nakvæmlega svona vandræðum.