om352

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

om352

Postfrá ellisnorra » 19.maí 2013, 23:14

Nú vantar mig að grúska í reynslusögum af om352 bens í jeppum.
Mótorinn sem ég er að spá í er ekki með turbo og óvíst með árgerð miðað við fyrstu upplýsingar.
Ég á dodge powerwagon sem ég er að hugsa þetta í og ætla að fara að gera eitthvað með doddann núna í sumar, gera hann ferðafæran.
Ég var að spá í bensínmótor, á fjandi góðan 350tbi keyrður 18þúsund mílur með 2wd sjálfskiptingu aftaná og ætlaði að setja sm465 kassa þar aftaná með 208 millikassa en af ýmsum ástæðum þá er ég orðinn afhuga bensíninu og ætla að nota grútinn í doddann.
350 mótorinn er því til sölu með skiptingu og rafkerfi.

En hvað segja menn um 352, þá mun ég skrúfa á hann túrbínu en geri ráð fyrir að þurfa að koma fyrir olíukælingu undir stimpla og annað slíkt, eða hvað? Hvað má svo blása miklu en vera samt on the safe side. Að sjálfsögðu set ég síðan afgashitamæli og intercooler.


http://www.jeppafelgur.is/


Grímur Gísla
Innlegg: 233
Skráður: 22.mar 2010, 20:52
Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
Bíltegund: Mussó, VW , MMC
Staðsetning: Fellabær

Re: om352

Postfrá Grímur Gísla » 20.maí 2013, 01:32

Hvaða undirnúmer er vélin með. 352.xxx.xxx


sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: om352

Postfrá sukkaturbo » 20.maí 2013, 07:32

Sæll Elli ég þekki mann sem var með svona vél hér í gamladaga í 250 ford Excab og var hann búinn að túrbóvæða hana og Cooler og eiga við eitthvað fleira. Hann heitir Viðar Finnsson. Þessi bíll var á 44" Superswamper og dana 60.Ég var þá á Jeep Hanco 360 með volgan mótor og á 44".En þessi om 352 6cyl benz ef ég man rétt át litlu 360 vélina mína í morgunmat þegar kom að brekkufræsi og togi hún vann alveg rosalega hjá Viðari. Þetta veit líka Lecter ef ég þekki hann rétt. Þetta rifjaðist upp þegar þú nefnir þessa bens vél og hvað eg var svektur yfir þessu. Ég á síman hjá Viðari ef þú vilt. kveðja guðni

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 20.maí 2013, 10:31

Grímur Gísla wrote:Hvaða undirnúmer er vélin með. 352.xxx.xxx


Ég þarf að komast að því. Það númer er víst efst á blokkinni, farþegamegin aftast samkvæmt honum gúggla vini mínum.

Já Guðni ég veit að það er hægt að ná helling út úr þeim, en það er spurning hversu mikið vesen það er (dýrt), hvort það séu þá keyptir einhverjir aftermarket partar í og hversu endingargóð vélin verður í kjölfarið.
http://www.jeppafelgur.is/


kolatogari
Innlegg: 157
Skráður: 23.okt 2010, 20:27
Fullt nafn: Hjalti Búi Kristbjörnsson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: om352

Postfrá kolatogari » 20.maí 2013, 10:32

mætti ég spyrja hvar þér áskor'naist svona vél? eg búinn að leita að svona mótor um víðan völl en hef engann fundið.


juddi
Innlegg: 1240
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: om352

Postfrá juddi » 20.maí 2013, 10:36

Ég var með svona mótor turbo lausan í Jeep M 715 og hún vann nokuð vel svo var Hjálmtýr Guðmundson í mosó með svona mótor turbo intercooler í blazer á 44" sem vann heilan helling og var seinnabreytt í Ms langanes eða blazer + langa pickup skúffu
Daggi S:6632123 snurfus@snurfus.is

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: om352

Postfrá jeepson » 20.maí 2013, 10:50

Ég fór að velta því fyrir mér að setja svona mótor í pattann minn fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég heyrði hjá einhverjum að þetta ynni og togaði eins og gamli 5,9 cummins. Ég ræddi þetta við gamlann renni smið sem er vinna hjá okkur og hann hló mikið þegar að ég sagði að benz vélin væri með svipaða vinnslu og cummins. Þessi vél var gjörsamlega andvana sagði hann. Gömlu kálfarnir með þessari vél fóru mjög hægt upp skarðið sagði hann.. Ég heyrt nokkra segja að þetta vinni alveg svakalega. Gamli rennismiðurinn sagði við mig að það væri engan vegin hægt að bera saman 352 og cummins. Cummins væri flottur torkari og ynni vel en benzinn væri því miður alveg máttlaus. En mér heyrist nú að menn séu nú að skrifa hér fyrir ofan að þessar vélar vinni vel.. Hvað er svona vél þung? Maður er altaf að pæla í öðru véla vali í pattan þó svo að 2,8 rellann dugi nú alveg til síns brúks. Það kostar ekkert að spá og spekúlera heldur þannig að það er bara um að gera að halda því áfram.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: om352

Postfrá Startarinn » 20.maí 2013, 11:07

Þessar vélar voru til í nokkrum útfærslum110 hö og 125 hö túrbólaus (+ einhver lægri tala sem ég man ekki hver var) og svo 170 hö með túrbínu en án intercooler.

Ég hugsa að flestir gömlu húddbensarnir hafi verið með 125 hö útgáfunni, enda voru þeir flestir af týpunni 1513 ef ég man rétt (15 tonna heildar þungi og 130 hö vél)

Það var einn 44" Blazer á Blönduósi með svona vél, ég veit ekki hvort sá bíll er til ennþá en síðast þegar ég vissi var Jónas (eigandinn) á Cherokee og átti Blazerinn einhversstaðar í geymslu. Hjöruliðskrossar voru víst mikið vandamál í þeim bíl, alltaf að brotna

Þessi vél er örugglega þrælskemmtileg með túrbínu, en ég hef heyrt að túrbólausu vélarnar hafi ekki staðið sig alltof vel með bínu. en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


BjarniThor
Innlegg: 29
Skráður: 29.nóv 2012, 21:12
Fullt nafn: Bjarni Þór Hafsteinsson
Bíltegund: Landcruiser HJ61

Re: om352

Postfrá BjarniThor » 20.maí 2013, 11:16

Sæll

Lýst vel á þetta hjá þér, endilega ráðast í þetta ef þú hefur efni og aðstöðu til.
Hvernig kassa og millikassa myndir þú nota í þetta? Hvernig er þessi Dodge sem
þú ert með, árgerð, útbúnaður og ástand almennt? Gaman væri ef þú myndir
senda hér myndir af þessu góssi öllusaman.

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 20.maí 2013, 11:20

Gísli það er tæplega hægt að líkja saman turbolausri 352 í 13-15 tonna vörubíl eða svo mótor sem er búið að eiga aðeins við i 3 tonna jeppa.

Svona mótor er samkvæmt gúggli 460kg þurrvigt.


Þessi mótor er núna í surburban með sm465 kassa og finnst mér líklegt að þar sé 208 kassi við.

Ég segi ekki meira frá doddanum í bili, nema að hann er 440cm á milli hjóla :)
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: om352

Postfrá jongud » 20.maí 2013, 11:28

Ég fletti upp á þyngdinni á OM352,
445 kg.
460 kg. með túrbínu

Ágætis stórskipaakkeri það


kolatogari
Innlegg: 157
Skráður: 23.okt 2010, 20:27
Fullt nafn: Hjalti Búi Kristbjörnsson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: om352

Postfrá kolatogari » 20.maí 2013, 15:56

jongud wrote:Ég fletti upp á þyngdinni á OM352,
445 kg.
460 kg. með túrbínu

Ágætis stórskipaakkeri það


það er nú ábygglilega nokkur kílo sem má skrapa þarna af. líklegast full af bracketum og utanáliggjandi hlutum sem eru smíðaðir með iðnaðarvél í huga, sem mætti hæglega skipta út fyrir léttari hluti.


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 19:39

sælir nú er komið að mér

ok fordinn sem viðar átti var turbo laus motor ekin 1,5milljon km þegar hún fór ofan i fordinn sem steini sim smiðaði

það var ekki stimpilkæling i honum en það var rent sæti fyrir auka stimpilhring efst á stimplana svo var hann með vatnskældan intercooler ég setti hann i með viðari ,, og turbo ,, það var aðeins pundað 22 pund in á þennan motor við fundum sverari kúplingu sem var mixuð i og stærsta oliuverkið sem er fyrir turbo þessi bill var um 3,6 tonn hann var með bens kassann 5 gira 9:1 1 gir 2 millikassa 4:10 drif 44" ,,,, eiddi 14-16 litrum
finn ferða hraði á honum var 120-130 milli isafjarðar og reykjavikur

ok þá skulum við bera saman cummins ram sem þórður smiðaði (var smiðaður á ljónstöðum)

hann var er 600kg lettari sömu hásingar 60dana eða um 3 tonn hann var 165hp en fekk 215hp banks kitt og risa intercooler
zF kassa 7;1 1gir 2 millikassa 4:10 drif 44" inn á cumminsin var pundað um 30 pundum ..

við spintum þessum bilum saman ca 6 sinnum og þeir voru alltaf jafnir við spintum td upp árunsbrekkuna og báðir jafnir á 150km hraða upp á brún miðað við 600kg mun var bensin ekkert að tapa fyrir tjunnuðum cummins og bensin er aðeins lettari vel minnir mig en við náðum ca 220hp út úr honum en það má ekki renna sveifar ásinn þá brotnar hann
þetta eru finar vélar ,,

þetta er cummins ramin sem ég er að tala um fáðu að prufa hann þa veistu hvað bens vélin gerir hún gerði nákvæmlega það sama i 600kg þingri bil það er ekki séns að þú komir 350 chevy undir 20l ég er svo með svona bens kram i kaisernum gula
Viðhengi
250954_1920081415703_807792_n.jpg
Image0049.jpg


BjarniThor
Innlegg: 29
Skráður: 29.nóv 2012, 21:12
Fullt nafn: Bjarni Þór Hafsteinsson
Bíltegund: Landcruiser HJ61

Re: om352

Postfrá BjarniThor » 20.maí 2013, 19:46

Vitið þið hvort þessi grái Ram á þessari mynd sé ennþá í notkun? Og í hvernig ástandi?

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: om352

Postfrá jeepson » 20.maí 2013, 19:48

Ég hef séð hann reglulega á ferðinni já. Vissulega flottur ram :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 19:51

það er til ferð þar sem þessi ram er með 360 ram með supercarger sem bilabúð benna átti og 10cyl ram sem gulli sonax átti og var sprautað upp langjökul minnir mig ég var ekki þar en frétti að hvorugur bensin bilana hefði tekið cummins raminn


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 19:53

ja hann er i topp standi eigandinn vinnur hjá fiskmaraðinum i hafnarf man bara ekki nafnið en hann vinnur við að laga körin sem brotna


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 20:04

afgas hita mælir er must en i snjó ca meter djúpum á veigi og ekið ca 100km hraða var gasið að fara upp i 5 gír en ef skipt var i 4 lækkaði það i normal aftur svo þú verður að nota svona mælir annað skiptir eingu og svona var þessi bill ekið nokkur hundruð þúsund km 22 pund ekkert mál


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 20:05

hvernig er áð á ekki einhver mynd af fordinum þetta var stór merkilegur bill

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 20.maí 2013, 20:22

Ég fór í dag aðeins að skoða.

352 016 060
Image


Image


Image

352 010 00 78 þarna á intake manifold
Image



Image


Og svo ein í lokin til gamans, ég fór á rúntinn á þessum í dag. Báðir mótorar í topplagi, v6 loftkældur í húddinu og 3cyl loftkældur tunnumótor. Framdrifinn og í toppstandi. Pínu ljótur og talsvert ryðgað hús. Heimasteypa á næstu dögum :)
Image
http://www.jeppafelgur.is/


Brjotur
Innlegg: 369
Skráður: 31.mar 2013, 15:39
Fullt nafn: Helgi j. Helgason
Bíltegund: Patrol

Re: om352

Postfrá Brjotur » 20.maí 2013, 20:27

Sælir sma innlegg fra mer , eg atti langan Econoline husbil i stuttan tima arið 1997 minnir mig, bill með haum topp og var a 36 tommu dekkjum og hann var með turbo 352 Bens og % gira bens kassa með 1 gir lagan og mikið djö..... sem þetta vann eg var svaka hrifinn af þessu comboi Atti samhliða þessum bil chevrolet pickup með 6,2 letingja :( æææ þa var nu Bensinn miklu skemmtilegri :)

kveðja Helgi


Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: om352

Postfrá Heiðar Brodda » 20.maí 2013, 20:44

Heitir hann ekki Kristján sem vinnur við að laga körinn í fiskmarkaðinum kv Heiðar Brodda


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 21:24

jú kristján


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 20.maí 2013, 21:54

svona i lokin það var prufað að setja nokkra intercooler i þennan ford sem ég er að vitna i og ekkert gerðist aður en hann fekk þennan vatnskælda cooler en við það þá fór hann i spól læstur að aftan ef honum var gefið inn á ca 80-90 ef það var svona vatnsblaut slidda eða blautt á götum en hann var á 44" og 4:10 drifi mér fanst það alveg magnað að koma spólandi upp úr kópavogs læknum alla leið upp að kringlu og það á svona 4 tonna trukk

en verst að þessi mótor var ekki dino mældur það hefði verið gaman að sjá togið hp hefði ´kanski ekki skipt öllu

en ég hef alltaf haldið að hann væri ca 220 hp togið ekki hugm

er bens kassinn við þennan motor þú notar hann

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 20.maí 2013, 23:24

Það er 4 gíra kassi með 1 extra lágum, þá er það líklega sm465 og svo er 203 millikassi. Ég á 208 kassa sem kannski væri sniðugt að setja aftaná þennan 203.

Hvaða túrbínu er sniðugt að möndla við svona?
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: om352

Postfrá Stebbi » 21.maí 2013, 03:09

elliofur wrote:Hvaða túrbínu er sniðugt að möndla við svona?


Þessi hérna.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 21.maí 2013, 07:50

Stebbi wrote:
elliofur wrote:Hvaða túrbínu er sniðugt að möndla við svona?


Þessi hérna.


Án þess að vera mjög sleipur í túrbínufræðum þá grunar mig að þessi sé dálítið stór, þessi er fyrir 12.8 lítra vél sýnist mér eftir dálítið gúggl en 352 er 5.7 lítrar.

Gaman væri að fá álit hjá fleirum á þessu.
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: om352

Postfrá jongud » 21.maí 2013, 08:29

elliofur wrote:Án þess að vera mjög sleipur í túrbínufræðum þá grunar mig að þessi sé dálítið stór, þessi er fyrir 12.8 lítra vél sýnist mér eftir dálítið gúggl en 352 er 5.7 lítrar.

Gaman væri að fá álit hjá fleirum á þessu.


5,7 lítrar? Þá er hún aðeins minni en cummins 5.9 og þá er um að gera að nota túrbínu af henni, þær eru allsstaðar til og ekki tiltakanlega dýrar.
Hvað er OM352 annars að snúast mikið í botni?

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 21.maí 2013, 08:56

2800-3000rpm virðist vera alveg max miðað við gúggl.
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: om352

Postfrá jongud » 21.maí 2013, 10:26

elliofur wrote:2800-3000rpm virðist vera alveg max miðað við gúggl.


Það er spurning hvort að túrbína fyrir 4.2 vél (toyota eða nissan) væri þá nógu stór, ég hef að vísu lítið spáð í þessum túrbínufræðum.
Hinsvegar sé ég að pústgreinin er bílstjóramegin á vélinni.
Þeir sem hafa verið að setja Isuzu 3.9 sleggjuna í bíla hafa verið að kvarta yfir plássleysi þegar er verið að reyna að koma vélinni fyrir vegna þess að pústgreinin (og túrbínan) er bílstjóramegin.
En hverslags soggrein er eiginlega á þessari vél?
Er hún innbyggð í ventlalokið?


Grímur Gísla
Innlegg: 233
Skráður: 22.mar 2010, 20:52
Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
Bíltegund: Mussó, VW , MMC
Staðsetning: Fellabær

Re: om352

Postfrá Grímur Gísla » 21.maí 2013, 16:08

Komu þessir Bensar ekki með túrbínu seinna. Það væri þægilegast að fá grein og túrbínu úr svoleiðis Bíl.
eins úr gömlum Volvó penta bátavélum. bara að googla stærðina á þessum vélum og velja úr svipaðri vél.

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 21.maí 2013, 18:02

Grímur Gísla wrote:Hvaða undirnúmer er vélin með. 352.xxx.xxx



Kanntu að lesa út úr þessum númerum sem ég póstaði hérna Grímur?
http://www.jeppafelgur.is/


Grímur Gísla
Innlegg: 233
Skráður: 22.mar 2010, 20:52
Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
Bíltegund: Mussó, VW , MMC
Staðsetning: Fellabær

Re: om352

Postfrá Grímur Gísla » 21.maí 2013, 20:21

Ég var eitt sinn búinn að finna síðu um þessi bens númer en asnaðist ekki á að bókmerkja síðuna og tíndi henni.
Ég var að googla þetta í gærkvöldi en fann ekkert út úr því. Ég var nú aðalega að fá þessi númer til að ath, hvort eitthvað væri googlað um vélar með þessum númerum. En eins og ég sagði, fann ekkert.

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 21.maí 2013, 20:23

Sama hér, ég kann ekki á þessi númer þó ég sé nú oft þokkalega laginn við að gúggla.
Ég spurði snillingana í bens klúbbnum út í þetta líka, á eftir að fá svör þar.
http://www.mbclub.is/spjall/viewtopic.p ... 6430eae486
http://www.jeppafelgur.is/


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 21.maí 2013, 20:46

findu turbo fyrir cummins eða ur 352 turbo
.það er sama 3000rpm á báðum sviðaðar velar

ju ventlalokið er hluti af sogreinini það þarf að lýma það vel niður með nýa pakningu fyrir 22pund en það var ekki stimpla kæling i viðars vél og var ekki vandamál en það varð ellings kúplings vandamál sem var lagað með stærri kúplingu

8943596 Viðar Finsson

en hvernig á þessi bill hjá þér að vera hvað ætlar þú með hann ,, 46" er hann með 60 hásingar

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: om352

Postfrá ellisnorra » 21.maí 2013, 20:51

Ég geri þráð um hann seinna, ég keypti þennan bíl 2009 og er ekki búinn að sækja hann í sveitaskemmuna sem hann er búinn að vera í síðan 1990 en til stendur að sækja hann í sumar og græja hann. Algjörlega óryðgað doublecab hús og steside pallur sem þarf að smíða up þó brettin séu algjörlega heil. 440cm milli hjóla og stendur á 44 tommu. Framhaldið er óvíst með þennan bíl, þe dekk svoleiðis en það kemur bara í ljós :)
http://www.jeppafelgur.is/


Grímur Gísla
Innlegg: 233
Skráður: 22.mar 2010, 20:52
Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
Bíltegund: Mussó, VW , MMC
Staðsetning: Fellabær

Re: om352

Postfrá Grímur Gísla » 21.maí 2013, 21:05

http://www.benzworld.org/forums/gtsearc ... 6j240434j4


benzworld.org Þarna er allur fjandinn inni af bens stöffi.


Baldur Pálsson
Innlegg: 138
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Baldur Pálsson
Staðsetning: Akureyri

Re: om352

Postfrá Baldur Pálsson » 21.maí 2013, 21:11

Hvar er ódýrast að fá varahluti í svona vél mér vantar slípsett.
kv
Baldur


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: om352

Postfrá lecter » 21.maí 2013, 22:15

slipisett veit ekki en það er ekki hægt að renna sveifarásinn i þessari vel það má gera allt annað

allir sveifarásar sem ég veit um sem hafa verið rendir hafa brotnað ,,, ´það var reynt hjá öllum rútufyrirtækjum hér aður og brotnaði allt ,,,,

ok ég var bara af forvitnast um hvert þú ætlaðir með að tjúnna þessa vél talaðu við viðar og smiðaðu eins vél það er alveg nog i þetta ,,svona bill er að virka með annan aftani bilaðan á fjöllum mun betur en flestir breyttir jeppar það hefur ekkert breyst

svo var eitt sem við notuðum við sveruðum allar lagnir i tankinn og einangruðum með kælivélasvampinum svarta og vorum með bowman girkælir ur bát á vatnskassa hosuni fyrir diesel hitara eða skipingar kælirinn úr saab 99, 900 hann er lika á vatnskassa hosuni svo þarf þessi vél gardinur fyrir vatnskassan með barka inn i bil húnn geingur frekar köld ,,, viðar var með gas miðstöð lika

þar sem ég er lika með svona vél mun ég að sjálfsögú apa eftir þér þar sem þú ert mun meiri grúskari en ég ,,,,,

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: om352

Postfrá Startarinn » 21.maí 2013, 23:34

elliofur wrote:Ég fór í dag aðeins að skoða.

352 016 060


352 010 00 78 þarna á intake manifold


Mér sýnist allavega seinna númerið vera partnúmer, en Benz steypir þau iðulega í varahlutina
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 12 gestir