Síða 1 af 1

Krani á álfelgum

Posted: 31.aug 2010, 16:54
frá hobo
Hafa menn ekki örugglega sett krana á álfelgur með góðum árangri?

Re: Krani á álfelgum

Posted: 02.sep 2010, 21:12
frá hobo
Hellú?

Er enginn með krana á álfelgu?

Re: Krani á álfelgum

Posted: 02.sep 2010, 21:24
frá Járni
Ég man nú bara ekki eftir að hafa séð svoleiðis.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 02.sep 2010, 21:39
frá hobo
Nefnilega ekki ég heldur.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 02.sep 2010, 21:47
frá Kalli
Bora bara ventilinn út, það er jafn gott:O)

Re: Krani á álfelgum

Posted: 02.sep 2010, 23:23
frá Járni
Jamm, það dugar prýðilega.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 06.sep 2010, 20:29
frá SverrirO
ég var að enda við að selja álfelgur með ventli og kúluloka, það voru reyndar breikkaðar felgur en það er sama.... álfelgur með krana

Re: Krani á álfelgum

Posted: 06.sep 2010, 20:35
frá hobo
Ok flott.
Ég er að gera það upp með mér hvort maður eigi að setja krana eða bara annan ventil útboraðan. Gallinn við ventilinn er að vont getur verið að eiga við hettuna í slæmu veðri.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 06.sep 2010, 21:19
frá jeepson
hobo wrote:Ok flott.
Ég er að gera það upp með mér hvort maður eigi að setja krana eða bara annan ventil útboraðan. Gallinn við ventilinn er að vont getur verið að eiga við hettuna í slæmu veðri.


Þú gætir fengið þér hettur með 6kant haus. Það munar heilmiklu. maður virðist ná betra gripi á þeim. Ég lenti mikið í því í vetur ða það var erfitt að losa hetturnar. En það er ein felgan með svona 6kant hettu ig það aldrei neitt mál að ná henni af.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 06.sep 2010, 21:53
frá hobo
Ég er nú með svoleiðis hettur, en í 10-15 stiga frosti og roki er frekar erfitt að handlanga hetturnar með hönskum. Það tekur mig ekki langan tíma að vera dofinn á fingrunum ef ég geri þetta berhentur. Ég skelli bara krönum og málið dautt..

Re: Krani á álfelgum

Posted: 13.sep 2010, 10:52
frá Guðjón S
Einn Ford 350 björgunarsveitarbíll er með krana á felgum, fengum bílinn breyttan frá Icecool, einn galli er að það þjappast alltaf mikill snjór í kranan, en eflaust er hægt að hafa hettu á krananum.

Re: Krani á álfelgum

Posted: 13.sep 2010, 15:45
frá ragnarbj
Ég er nú búinn að vera með krana á álfelgum hjá mér í 3 ár og aldrei neitt vesen..