Síða 1 af 1

Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 30.aug 2010, 21:33
frá Strapponinn
Hvað er besta leiðinn til þess að setja túrbínu á svona vél.
Hafa menn einhverja reynslu á því.

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 30.aug 2010, 22:38
frá halendingurinn
Ég fékk mér túrbínu og millihedd af 6.5 og skrúfaði vel uppí olíuverki setti svert púst alveg upp í túrbínu festi framhjáhlaupsventilinn á 6.5 túrbínuinni (hann er vacumstírður á 6.5 ef ég man rétt) tók olíuna inná túrbínu hjá smurolíu síu, affallið setti ég svo inná hráolíudæluhúsið (þar víkkaði ég olíugönginn niður í pönnu). Setti bústmæli og afgashitamæli. Þetta fór þá að virka ágætlega. Fullt af uppl í ameríkuhreppi um þessar vélar ef þú nennir að gúggla, bæði um styrkingar á höfuðlegubökkum með gjörðum á milli höfuðlega lækka þjöppu ef menn vilja fara útí svoleiðis, marin olíuverk ofl.

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 30.aug 2010, 22:40
frá Izan
Sæll

Það eru til Banks túrbínur, held að það sé hægt að fá einhvað kitt í ameríkuhreppi en menn hafa líka notað bínurnar af 6.5 gm. Minnir að það þurfi að plana aðeins af soggreinunum til að þær passi á mótorinn en annað er eins nema olíuverkið. Það getur skilað meiri olíu með túrbínunni. Gæti verið gott að fá verk af 6.5.

Kv Jón Garðar

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 30.aug 2010, 22:45
frá ellisnorra
Ég hef aðeins verið að spekulera í þessu, skoðaði soldið hér
http://www.dieselplace.com/forum/forumdisplay.php?f=20
fyrir einhverju síðan.

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 30.aug 2010, 22:56
frá halendingurinn
Ekki þurfti ég að plana neitt af milliheddinu, ég myndi ekkert vera að eltast við 6.5 olíuverk, ef þú lest aðeins um það á netinu þá hafa menn átt í smá vandræðum með það. Annars gangi þér vel með þetta.

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 01.sep 2010, 14:49
frá Strapponinn
Takk fyrir þetta strákar.

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 01.sep 2010, 23:33
frá juddi
Á til túrbínu pústgreinar,millihedd,spíssa ofl úr 6.5 ef einhver hefur áhuga

Re: Setja Túrbínu á 6,2GM

Posted: 06.sep 2010, 22:03
frá jeep84
Sæll Dagbjartur, hef kanski áhuga á milliheddinu ef það er af (f) vélinni. Davíð S.8983091