Síða 1 af 1

Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 18:20
frá Árni Braga
Hvaða hásingar eru undir þessum bílum og hvaða millikassi.

Re: Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 18:57
frá jeepcj7
Það er dana 30 að framan og ef þú ert heppinn er dana 44 að aftan en í einhverjum tilfellum er allavega afturhásingin mjög lík dana 44 það bara passar ekkert á milli.
Millikassinn er Borg Warner 4407 minnir mig og er fínn kassi nema að hann er rafskiptur og það vill vera að klikka stundum.

Re: Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 19:40
frá Kiddi
jeepcj7 wrote:Það er dana 30 að framan og ef þú ert heppinn er dana 44 að aftan en í einhverjum tilfellum er allavega afturhásingin mjög lík dana 44 það bara passar ekkert á milli.
Millikassinn er Borg Warner 4407 minnir mig og er fínn kassi nema að hann er rafskiptur og það vill vera að klikka stundum.


Ég lenti í þeim leiðindum að telja mig vera með Dana 44 afturhásingu sem síðan reyndist svona dingdongtrallala-næstumþví Dana 44. Munurinn á þeim og "alvöru" Dana 44 er staðsetningin á pinjónlegunum. Hlutfallið gengur semsagt ekki á milli en læsingin á að ganga á milli. Ég notaði sömu öxla áfram en fann mér alvöru D44 hásingu.

Re: Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 19:50
frá Þorri
Þeir eru flestir á dana 44 að aftan allavega bílarnir sem bílabúð benna flutti inn. Ef þú losar olíutappann úr lokinu á afturhásingunni með 3/8 skralli þá ertu með dana 44 en ef þú notar 1/2" skrallið þá ertu með ding dong.

Re: Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 21:19
frá JLS
Er einhver annar millikassi sem passar á musso benz skiftinguna sem er með framdrifs úrtakið farþegamegin/hægramegin?

Re: Mussó spurning

Posted: 23.apr 2013, 21:51
frá jeepcj7
Já það er líklega rétt að flest nema hlutfallið sjálft gangi á milli dana og dingdong hásinga en svo er millikassinn líklega bw 4426 veit ekki afhverju hitt # sat í mér.Hef reyndar ekki borið saman hvort um er að ræða að framan dana 30 og einhverja dingdong útgáfu eins og að aftan en pinjóninn er allavega alltaf niðri ss. ekki rev drif framan.