Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu uppfært 27.06.16

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 01.jan 2014, 13:13

Sæll Gísli mér þykir vænt um að heyra þetta.
En byrjaði 08.00 í morgun setti gluggan í og stillti upp vinstri afturkantinum. Mikið langar mig bara að festa afturhurðarnar og byggja kantana almennilega á bílinn. Setja svo hurðar að aftan og langbekki bæði til að liggja á og undir farþega. Hvernig lýst mönnum á þessa hugmynd.??Mynnir að hún sé búinn að koma fram áður. kveða Guðni
Viðhengi
DSC00088.JPG
DSC00088.JPG (135.07 KiB) Viewed 9936 times



User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Hfsd037 » 01.jan 2014, 13:36

Mér þætti það mun flottara ef að kanntarnir væru smíðaðir þannig að þeir myndu hylja gapið framan við dekkin
partur af könntunum yrðu settir á hurðarnar svona eins og á Patrol Y61.
Afturhurðarnar eru mjög dýrmætar og það væri synd að sleppa þeim á svona vel breyttum bíl, ég segi, redda þessu með plasti! :)

Á meðan ég man, þá er Car System sparslið sem fæst hjá Málningavörum eitt það besta sparsl sem menn komast í, það skiptir máli að vera með almennileg efni upp á tímann og þægindin í svona body og brettakanntasmíði að gera.

Gleðilegt nýtt ár! :)
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 01.jan 2014, 15:01

Sæll Hlynur ég er sammála þér og maður verður bara að hafa sig í þetta. Klára fyrst kantana fyrir aftan hurðar og ráðast svo á að smíða kantana á hurðarnar. Gott að fá peppið það drífur mann áfram kveðja. Guðni

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá gislisveri » 01.jan 2014, 16:07

sukkaturbo wrote:Sæll Gísli mér þykir vænt um að heyra þetta.

Já, maður verður stundum svoldið meyr á 18. bjór.
Kv.
Gísli.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 01.jan 2014, 18:00

Sæll Gísli vín er innri maður. Kveðja Guðni
PS. svo að það komi fram þá hef ég enga afsökun á vitleysunni í mér þar sem ég drekk ekki en smá afsökun.Maður er jú með stóran haus og heimskur er oftast höfuð stór segir málmtækið


stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá stebbiþ » 01.jan 2014, 18:57

Gleðilegt nýtt ár Guðni, með þökk fyrir besta jeppabreytingaþráð síðasta árs. Vonandi verður framhald á því, þetta verður óstöðvandi tæki.
Aldrei að vita nema maður kíkji á þig seinna í vetur ef ég fer í skíðaferð norður með familíuna.

Nýárskveðja, Stebbi Þ.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 01.jan 2014, 19:44

Sæll Stebbi og smöuleiðis og láttu sjá þig það er skyldu mæting í kofan hjá öllum jeppaspjallverjum sem koma á Sigló og alltaf heitt á könnunni. kveðja Guðni

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá jeepson » 01.jan 2014, 19:54

Já svo ekki gleyma því að kaffið er alveg hrikalega gott hjá þér Guðni. Það alveg þess virði að keyra norður bara til að fá sér einn bolla eða tvo :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


Wrangler Ultimate
Innlegg: 90
Skráður: 19.mar 2013, 13:33
Fullt nafn: Gunnar Ingi Arnarson
Bíltegund: Wrangler Ultimate

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Wrangler Ultimate » 01.jan 2014, 20:03

Gleðilegt jeppanýár

breiddin á köntunum er flott. kantar eiga alltaf að covera rétt yfir munstrið :) en ekki lengra..

að aftan sýnist mér vera nóg pláss til að smíða kantinn bara fullkláraðann fyrir aftan hurðina og hafa hana bara án kants... mun einfaldara og mér finnst bilið framan við dekkið vera of mikið sem leysist við þetta.

nærðu ekki að hafa kantinn hærra upp á boddíinu til að hafa meiri uppfjöðrun og lægri bíl ? kannski of mikið vesen

kv Gunnar
CJ Ultimate
1990
6.0 V8
46"
http://f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=6&t=35623


stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá stebbiþ » 01.jan 2014, 20:04

Þakka gott boð, ég læt sjá mig.

Kv, Stebbi


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 01.jan 2014, 23:39

Wrangler Ultimate wrote:Gleðilegt jeppanýár

breiddin á köntunum er flott. kantar eiga alltaf að covera rétt yfir munstrið :) en ekki lengra..

að aftan sýnist mér vera nóg pláss til að smíða kantinn bara fullkláraðann fyrir aftan hurðina og hafa hana bara án kants... mun einfaldara og mér finnst bilið framan við dekkið vera of mikið sem leysist við þetta.

nærðu ekki að hafa kantinn hærra upp á boddíinu til að hafa meiri uppfjöðrun og lægri bíl ? kannski of mikið vesen

kv Gunnar

Takk fyrir innleggið Gunnar ætla að skoða þetta vel kveðja guðni


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 03.jan 2014, 18:46

Sælir félagar áfram með smjörið. Var að steypa kantana að aftan og kláraði að steypa þá fram að afturhurðum. Við ætlum að fara að ráðum Gunnars og leggja kantana að hluta á hurðarnar. Þurfum að eins að sjóða og leggja utan á hurðarnar stál undir kantana. Er að skrapa dóti í framendan og er flest komið sem vantar. Vantar þó betri kúppla en þeir koma örugglega og en vantar góðan framstuðara helst króm orginal. kveðja Snilli og Tilli
Viðhengi
þeta mjakast nú vantar okkur  kúpplana.JPG
þeta mjakast nú vantar okkur kúpplana.JPG (137.31 KiB) Viewed 9543 times
vinstri á leiðinni.JPG
vinstri á leiðinni.JPG (143.92 KiB) Viewed 9543 times
kantur í smíðum kominn fram að hurð hægra meginn.JPG
kantur í smíðum kominn fram að hurð hægra meginn.JPG (127.66 KiB) Viewed 9543 times

User avatar

heidar69
Innlegg: 142
Skráður: 20.maí 2012, 18:22
Fullt nafn: gudmundur heidar asgeirsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá heidar69 » 07.jan 2014, 18:30

Sælir Ég er einn af þeim sem skoða vefinn hjá þér reglulega... Glæsilegt hjá þér.... Áttu myndir af bílnum hjá Jörgen...


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 07.jan 2014, 19:22

Sæll félagi hér er ein gömul frá því í fyrra er við settum 54" undir hér á Sigló. kveðja guðni
Viðhengi
DSC03663.JPG
DSC03663.JPG (519.46 KiB) Viewed 9327 times


TDK
Innlegg: 105
Skráður: 19.des 2011, 22:11
Fullt nafn: Guðmundur H. Aðalsteinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá TDK » 08.jan 2014, 00:17

Eru menn bara að framleiða Jeppaskrímsli á færibandi þarna á Sigló?


hannibal lekter
Innlegg: 126
Skráður: 05.okt 2012, 22:18
Fullt nafn: Hannibal Páll Jónsson
Bíltegund: hilux,BMW
Staðsetning: sauðanes viti

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá hannibal lekter » 08.jan 2014, 00:31

Guðni er allveg ótrúlega duglegur í þessum efnum alltaf gamann að kikka til hans í kaffi og spjalla um daginn og veginn :)

User avatar

heidar69
Innlegg: 142
Skráður: 20.maí 2012, 18:22
Fullt nafn: gudmundur heidar asgeirsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá heidar69 » 08.jan 2014, 09:16

Flottur bíll.... Svo verður gaman að sjá kverninn létti cruserinn bíllinn kemur út á 54 miðað við þann stóra...


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 09.jan 2014, 10:03

Sælir félagar þá eru það innrimaðurinn (brettin) Notaði orginal brettin átti 4 og get smíðað úr því ágætis hjólskálar.
Viðhengi
nóg pláss væri hægt að geyma stutta sukku þarna.JPG
nóg pláss væri hægt að geyma stutta sukku þarna.JPG (152.95 KiB) Viewed 9038 times
tektil fyrsta umferð af 10.JPG
tektil fyrsta umferð af 10.JPG (109.48 KiB) Viewed 9038 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 12.jan 2014, 13:49

Sælir félagar þá er loksins búið að smíða hjólskálarnar að framan. Notast var við fjórar orginal skálar þannig að útkoman varð svo til orginal lúkk á skálunum og allt úr járni. Ekki rör og gúmí lufsur. Festingar og annað áfram klárt fyrir orginal rafkerfið sem á þeim hvílir rely og fleira. Settum boltaða lúgu í innrabrettið til að komast að olíuverki og fleiru og er þá hægt að vinna í gegnum innrabrettið og maður hefur þak yfir höfuðið á meðan ef rignir mikið.
Næsta verkefni hjá okkur Snilla er gólfið og er það nokkuð mikil vinna. Byrjað verður á að fá styrk í það aftur en búið var að skera í sundur bitana í gólfinu. Þetta er heljarinnar gat og á sínum tíma hefur þetta virkað sem fínasta WC. En með nútíma tækni þar sem notast er við mannlegar haugsugur sem gerðar eru úr 2" slöngum og vagúmdælu með poka og backmyndavél (læt ykkur um að skilja þetta) þarf þetta gat ekki lengur.En þetta potast en er ansi seinlegt. kveðja Snilli og Tilli
Viðhengi
seinni hjólskalinn tilbúinn. Setti góða viðgerðalúgu í hjólskalina sem er boltuð  og hægt er að losa úr til að komast að olíuverki og pcikuppbarka ef á þarf að halda.JPG
seinni hjólskalinn tilbúinn. Setti góða viðgerðalúgu í hjólskalina sem er boltuð og hægt er að losa úr til að komast að olíuverki og pcikuppbarka ef á þarf að halda.JPG (110.92 KiB) Viewed 8823 times
2 mm og stansað og fellt vel að gólfi og þá kemur styrkurinn vonandi aftur. Gott pláss fyrir læsingahandföngin og handbremsuna.JPG
2 mm og stansað og fellt vel að gólfi og þá kemur styrkurinn vonandi aftur. Gott pláss fyrir læsingahandföngin og handbremsuna.JPG (140.87 KiB) Viewed 8823 times
þessu þarf að loka ekki þörf á svona gamaldags WC lengur.JPG
þessu þarf að loka ekki þörf á svona gamaldags WC lengur.JPG (156.21 KiB) Viewed 8823 times

User avatar

firebird400
Innlegg: 171
Skráður: 10.aug 2012, 18:47
Fullt nafn: Agnar Áskelsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá firebird400 » 13.jan 2014, 06:43

Ég er búinn að fylgjast með þessum þræði frá upphafi. Agalega skemmtilegt verkefni hjá ykkur.

En hafið þið einhvað spáð í það að skera meira úr dekkjunum til að dýpka munstrið líkt og Hörður gerði við dekkin undir Chevy pikkupinn hjá sér?
Það er víst nóg af gúmmíi á þessum Boggerum.
Agnar Áskelsson
Er að leita að næsta jeppa.
Keflavík


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 13.jan 2014, 07:39

Sæll Agnar jú er búinn að spá í því. Ég ætla fyrst að prufa þetta svona. Hef góða reynslu af 46" sem ég skar svona og var með undir foxinum mínum. Er búinn að fara út og prufa og fékk mjög góða bælingu á dekkin á 2 pundum. Bíllinn stendur á flísum sem eru á gólfinu og eru þær 30x30 cm.
Ég hleypti úr niður í 1,5 pund og stóð bíllinn þá á tæplega fjórum flísum á lengdina og þremur á breiddina. Þetta er kanski ekki marktæk mæling en þetta er ansi stór flötur.Okkur fanst líka bíllinn snúa þessum dekkum auðveldlega og vera ótrúlega létt yfir honum. Tekið skal fram að ekki var farið í neina langkeyrslu heldur bara eins langt og teygjan náði sem er nú aðal heimkomu öryggið hjá klúbbnum okkar sést heim til mömmu jeppavinafélagið. Þegar teygjan er kominn í botn dregur hún okkur til baka og inn í skúr.
Þetta er alveg nauðsynlegur búnaður í dag fyrir okkur sófa jeppamennina og tryggir örugga heim komu ef olían klárast og nestið.Er að hugsa um að fjölda framleiða svona teygju. kveðja guðni


Baldur Pálsson
Innlegg: 138
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Baldur Pálsson
Staðsetning: Akureyri

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Baldur Pálsson » 13.jan 2014, 17:22

sukkaturbo wrote:Sæll Agnar jú er búinn að spá í því. Ég ætla fyrst að prufa þetta svona. Hef góða reynslu af 46" sem ég skar svona og var með undir foxinum mínum. Er búinn að fara út og prufa og fékk mjög góða bælingu á dekkin á 2 pundum. Bíllinn stendur á flísum sem eru á gólfinu og eru þær 30x30 cm.
Ég hleypti úr niður í 1,5 pund og stóð bíllinn þá á tæplega fjórum flísum á lengdina og þremur á breiddina. Þetta er kanski ekki marktæk mæling en þetta er ansi stór flötur.Okkur fanst líka bíllinn snúa þessum dekkum auðveldlega og vera ótrúlega létt yfir honum. Tekið skal fram að ekki var farið í neina langkeyrslu heldur bara eins langt og teygjan náði sem er nú aðal heimkomu öryggið hjá klúbbnum okkar sést heim til mömmu jeppavinafélagið. Þegar teygjan er kominn í botn dregur hún okkur til baka og inn í skúr.
Þetta er alveg nauðsynlegur búnaður í dag fyrir okkur sófa jeppamennina og tryggir örugga heim komu ef olían klárast og nestið.Er að hugsa um að fjölda framleiða svona teygju. kveðja guðni

Það eru ekki nýjar fréttir að hann snúi þessu auðveldlega ég keyrði hann á milli 2000-3000 km á svona dekkjum bara svolítið minna slitinn.
kv
Baldur


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 15.jan 2014, 14:04

Sælir félagar þá er gólfið klárt og handbremsan á leiðinni á nýja gólfið. En allt er klárt undir gólfi. Loksins búnir að skera kantana til og verða þeir límdir á um helgina. Búinn að skipta um sílsana og festa frambrettin við boddýið að neðan. Mikið af dundi og sést lítið eftir okkur. En þetta mjakast.
Viðhengi
gólfið klárt og gat ég hoppað hæð mina án þess að fara niður úr því. Þannig að það stenst styrkleikapróf. Efnið er 2mm og sett í það brot.JPG
gólfið klárt og gat ég hoppað hæð mina án þess að fara niður úr því. Þannig að það stenst styrkleikapróf. Efnið er 2mm og sett í það brot.JPG (105.21 KiB) Viewed 8395 times
búið að skera til kantana og verða þeir límdir á um helgina. Svo er að hefjast uppgerð á 46 Wyllis sem Síldarminjasafnið á. En þetta er grindin undan honum.JPG
búið að skera til kantana og verða þeir límdir á um helgina. Svo er að hefjast uppgerð á 46 Wyllis sem Síldarminjasafnið á. En þetta er grindin undan honum.JPG (157.2 KiB) Viewed 8395 times

User avatar

Fetzer
Innlegg: 376
Skráður: 31.okt 2010, 21:28
Fullt nafn: Aron Agnarsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Fetzer » 15.jan 2014, 17:21

Helviti flott hjá ykkur !
Land Cruiser 70 1989 í uppgerð
Hyundai Terracan 38"


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 15.jan 2014, 19:43

Sælir takk fyrir það Aron.

En annað mál aðeins að misnota síðuna. Nú vantar mig ABS heilan í BMW-X-5 2001 jeppan sem guttinn minn var að kaupa sér. Endilega sendið mér mail ef þið vitið um þetta á skikkanlegu verði eða leið til að fá þetta sem ódýrast.
mailið er gudnisv@simnet.is

eða hringið í mig gsm 8925426

kveðja Guðni


IL2
Innlegg: 27
Skráður: 05.aug 2010, 23:01
Fullt nafn: Óskar Óskarsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá IL2 » 15.jan 2014, 22:10

Guðni, prófaðu hérna með heilan http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewforum.php?f=5.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 15.jan 2014, 22:33

Sæll og takk kveðja guðni


IL2
Innlegg: 27
Skráður: 05.aug 2010, 23:01
Fullt nafn: Óskar Óskarsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá IL2 » 15.jan 2014, 23:48

Ég gleymdi svo þessu með 46 Wyllisin http://www.jsl210.com/spjall/viewforum. ... d82ebe4f46


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 17.jan 2014, 17:03

Sælir félagar enn verið að. Kláruðum að festa og líma framkantana í dag og tengja og stilla Patrol handbremsuna sem er algjör snilld hvað virkni varðar. Settum réttskeiðar utan á kantana og mældist bíllinn 249cm þannig mældur.
Viðhengi
handbremsan aldeilis farinn að virka fór með hausinn í framrúðuna þegar ég reif í hana og gólfið hélt.JPG
handbremsan aldeilis farinn að virka fór með hausinn í framrúðuna þegar ég reif í hana og gólfið hélt.JPG (158.53 KiB) Viewed 8002 times
loksins kantarnir orðnir fastir og bíllinn 249cm út á ystubrún kantana mælt með réttskeið.JPG
loksins kantarnir orðnir fastir og bíllinn 249cm út á ystubrún kantana mælt með réttskeið.JPG (134.7 KiB) Viewed 8002 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 17.jan 2014, 17:16

Sælir aftur félagar sá þetta til sölu. Þetta eru loftpúðar úr Lincoln jeppa að aftan. Væri hægt að nota þetta í 54" Cruserinn??? kveðja Guðni
Viðhengi
loftpúðar lincoln.jpg
loftpúðar lincoln.jpg (27.9 KiB) Viewed 8001 time


Dúddi
Innlegg: 198
Skráður: 13.feb 2010, 12:57
Fullt nafn: rúnar ingi árdal

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Dúddi » 19.jan 2014, 23:56

Framkantarnir koma vel út, helvíti flottir og passa bilnum. Þegar eg hef farið með mina bila i sérskoðun þá er mælt útfyrir belg á dekkjum.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 20.jan 2014, 07:50

Sæll Rúnar og takk fyrir það. Ef er mælt með því að leggja á belgina réttskeið þá verður hann ansi breiður. Ég var búinn að heyra um að það væri mælt á ystubrún á sólanum. Ætli maður þurfi þá ekki breiddarljós. Var líka búinn að heyra að það þyrfti ekki breiddarljós ef bíllinn væri undir 255cm, En hvað ef hann fer yfir 255cm kanski 260 cm fæst þá ekki skoðunn? Ég er viss um að það eru einhverjir bílar sem mældir eru út fyrir mestu breidd á belgjum dekka yfir 255. kveðja guðni

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Stebbi » 20.jan 2014, 08:13

Bíllinn minn var mældur út fyrir mynstur á dekkjum ekki út fyrir belg. Kanski er þetta eitthvað sem skoðunar menn gera hver með sínu nefi, annað eins hefur nú gerst.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 09:23

Ég er búinn að fletta gegnum viðeigandi kafla í reglugerðinni um gerð og búnað ökutækja en ég finn enga skilgreiningu á "ystu brún ökutækis".

Mér persónulega finnst eðlilegt að dekkin séu með í því þar sem þau eru vissulega partur af ökutækinu. En það er auðvitað hagstæðara fyrir okkur að taka ystu brún á munstri eða ytri brúnir á köntum.
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Dúddi
Innlegg: 198
Skráður: 13.feb 2010, 12:57
Fullt nafn: rúnar ingi árdal

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Dúddi » 20.jan 2014, 09:31

Þú þarft alltaf breyddarljós hefði ég haldið, gamli minn svona cruiser þurfti þau þvi hann for yfir 2.3 og einhverntima heyrði ég að mörkinn væru farinn ur 2.3 niður í 2,1. Maður fær ekki skoðun ef ökutækið fer yfir 2,55, það er mesta leifilega breydd á vörubíl, annars er hægt að fá fasta undanþágu á vélavagna en efast um að það sé hægt með bíla.

User avatar

Hordursa
Innlegg: 131
Skráður: 07.feb 2010, 14:20
Fullt nafn: Hörður Sæmundsson
Staðsetning: Kópavogur

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Hordursa » 20.jan 2014, 09:37

Sæll Guðni.
það á að mæla á ystu brún dekkja, en kúlan sem myndast vegna snertingar við jörð á ekki að mælast með.

kv Hörður

User avatar

Seacop
Innlegg: 43
Skráður: 09.mar 2013, 12:33
Fullt nafn: Óskar Þór Guðmundsson
Bíltegund: 90 Cruiser

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Seacop » 20.jan 2014, 12:57

Sæll Guðni.
Reglugerð 155/2007 um stærð og þyngd ökutækja segir:
7. gr.
Breidd ökutækis.

Leyfileg breidd bifreiðar og eftirvagns er 2,55 m með þeirri undantekningu að yfirbygging jafnhitavagns má vera 2,60 m.
Leyfileg breidd vinnuvélar, eftirvagns hennar eða tengitækis til landbúnaðarstarfa eða vegavinnu er 3,30 m. Lögreglan getur bannað akstur slíkra ökutækja þegar sérstaklega stendur á.

Breidd ökutækis skal mæld milli þeirra hluta þess sem standa lengst til hliðar. Speglar eða ljósker, önnur en aðal-, vinnu- og hliðarljósker, svo og keðjur á hjólum, eru ekki talin til breiddar ökutækis. Sama gildir um festingar fyrir yfirbreiðslu og vörn þeirra.

User avatar

Steinmar
Innlegg: 63
Skráður: 02.aug 2013, 08:38
Fullt nafn: Steinmar Gunnarsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Steinmar » 20.jan 2014, 15:51

Sæll Guðni
Ég tók mig til og leitaði að einhverju um breiddarljós og fann eftirfarandi: Breiddarljós skulu vera á bifreiðum/eftirvögnum sem eru meira en 2100 mm á breidd. Litur skal vera hvítur fram og rauður aftur. Staðsetning skal vera á/við efri brún yfirbyggingar og ekki innar en 400 mm frá ystu brún ökutækis. Ljósin skulu lýsa 5°upp á við og 80°niður á við.

Breiddarljós er hægt að fá í Bílanust, ET, GT Óskarssyni, Bílasmiðnum og eflaust fleiri stöðum.

Vonandi hjálpar þetta eitthvað.

Kveðja að sunnan
Steinmar


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 20.jan 2014, 16:11

Sælir félagar og takk fyrir þessar upplýsingar. Ég skil þetta svo að ég geti reiknað með að það sé mælt út á ystubrún sólans en ekki á belgnum sjálfum.Breiddarljós þarf ég örugglega svo aftur mikið takk.
Svo vil ég fyrir hönd okkar Snilla þakka ykkur jeppaspjallverjum öllum kærlega fyrir að gefa okkur atkvæði í kosningunni sem var að ljúka. Einnig vil ég þakka eigendum jeppaspjallins og stjórn fyrir frábæran og skemmtilegan vef sem hvetur jeppamenn til verka og áhugamenn um að byrja í jeppamennskunni. Hér eru menn alltaf tilbúnir að gefa ráð og aðstoða náungan og það þykir mér frábært.kveðja Guðni
Viðhengi
photo.JPG
stuðari og ljós kominn á. Hæð upp í efribrún ljósa er nú 134 cm og 37 cm í ystubrún kanta. Er þetta ekki næg breidd á köntunum? svona er bíllinn 252cm mælt á ystukantabrúnir með réttskeið
photo.JPG (120.22 KiB) Viewed 7638 times

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 17:32

Úr reglugerð um gerð og búnað ökutækja:

07.203 Breytt bifreið.
(1) Hæð aðalljóskera á breyttri torfærubifreið má mest vera 1350 mm.
(2) Hæð bakkljóskera á breyttri torfærubifreið má mest vera 1650 mm.
(3) Breytt torfærubifreið má vera búin tveimur ljóskösturum sem mega vera tengdir stöðuljóskerum um
eigin rofa og samtengdir gaumljósi í mælaborði.
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 11 gestir