Síða 1 af 1
Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 15.mar 2013, 19:34
frá villi58
Það væri gott ef einhver getur hjálpað mér, mig vantar að vita hvaða hlutföll eru á gírum í gírkassa og hvað hann heitir og númer.
Eins er með hlutföll á gírum millikassa nafn eða númer.
Kveðja!
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 15.mar 2013, 21:13
frá Valdi B
þetta er ekki rétti staðurinn fyrir þessa spurningu, og annars er google rétti staðurinn til að leita að þessu
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 15.mar 2013, 22:03
frá aggibeip
Það er nú þegar til þráður um svona dót :) tékkaðu á þessu og sjáðu hvort að þetta hjálpi eitthvað..
viewtopic.php?f=2&t=16536
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 09:25
frá jongud
valdibenz wrote:þetta er ekki rétti staðurinn fyrir þessa spurningu, og annars er google rétti staðurinn til að leita að þessu
Það eru ekki allir sem tala Google reiprennandi
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 13:28
frá Freyr
Já, tek undir það að ég sé ekki að þessi spurning sé á nokkurn hátt frábrugðin mörgum hér á vefnum og tel hana eiga fullan rétt á sér.
Kveðja, Freyr
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 18:26
frá Svenni30
Freyr wrote:Já, tek undir það að ég sé ekki að þessi spurning sé á nokkurn hátt frábrugðin mörgum hér á vefnum og tel hana eiga fullan rétt á sér.
Kveðja, Freyr
Alveg sammála, en mætti vera á réttum stað samt, ekki undir jeppinn minn ;)
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 19:02
frá villi58
Ég sá ekki að það breytti neinu máli að setja þessar spurningar í jeppinn minn, tek það framm að þessar spurningar eru vegna jeppans míns og ekki eins og ég sé að selja rollukjöt.
En ég hefði nú alveg reynt að finna betri stað fyrir spurningar mínar og huga að því næst.
Þar sem ég er blindur á öðru og rétt sé tittinn á mér með hinu þá fór sem fór.
Jeppakveðjur til ykkar allra og þó mest til mín!!!!!!!!!!
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 22:12
frá Valdi B
bara sv0 það sé á hreinu þá var ég ekki að vera með nein leiðindi... ég held að ég sé að fara með rétt mál 0g flestir geri sér grein fyrir því að hérna er ætlunin að k0ma með þráð um jeppann sinn, síðan er búið að spyrja um sv0na á öðrum stöðum á spjallinu þar sem ætlast er til að f0lk leiti með spurningar eins 0g þessa til dæmis...
kv.valdi
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 16.mar 2013, 23:35
frá villi58
valdibenz wrote:bara sv0 það sé á hreinu þá var ég ekki að vera með nein leiðindi... ég held að ég sé að fara með rétt mál 0g flestir geri sér grein fyrir því að hérna er ætlunin að k0ma með þráð um jeppann sinn, síðan er búið að spyrja um sv0na á öðrum stöðum á spjallinu þar sem ætlast er til að f0lk leiti með spurningar eins 0g þessa til dæmis...
kv.valdi
Þetta er rétt hjá þér hefði átt að fara á annan stað
Kveðja!
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 17.mar 2013, 00:25
frá Stebbi
villi58 wrote:..... og ekki eins og ég sé að selja rollukjöt.
Það hefði nú verið meiri snilldin ef svo hefði verið. Kistan hjá mér er að verða tóm.
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 17.mar 2013, 11:06
frá hobo
Komið á betri stað.
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 17.mar 2013, 11:16
frá jongud
hobo wrote:Komið á betri stað.
kjötið ?
Re: Toyota Hilux disel árg. 1990. gírkassar
Posted: 17.mar 2013, 11:19
frá hobo
Já í kistuna mína.