Síða 1 af 1
Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 18:54
frá Grásleppa
Titillinn segir allt sem segja þarf! Er ekki úr bænum og veit ekkert hvert ég á að snúa mér. Kv, Jóhann
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 19:17
frá Gilson
Bílanaust er með eitthvað úrval af þessu. 2.5 - 3" árör, frekar dýrt samt.
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 20:50
frá LFS
getur alveg eins notað pustefni
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 21:13
frá Grímur Gísla
Ég notaði pústefni og silikon hulsur úr Bílanausti.
Var að vinna þar sem ég hafði aðgang að begjuvél
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 21:23
frá lecter
barki i kopavogi er lika með hosur i öllum gerðum kanski lanvélar bara bera saman verð
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 23:09
frá Grásleppa
Hef séð þetta þar sem notað er pústefni og beygt, lýtur ekkert sérlega fallega út og er ekki slæmt að þrengja niður rörið með því að beygja það? Er ekki betra að kaupa tilbúnar beygjur og rör og setja saman með hosum?
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 12.mar 2013, 23:34
frá Grímur Gísla
Grásleppa wrote:Hef séð þetta þar sem notað er pústefni og beygt, lýtur ekkert sérlega fallega út og er ekki slæmt að þrengja niður rörið með því að beygja það? Er ekki betra að kaupa tilbúnar beygjur og rör og setja saman með hosum?
Ég var með víðara rör en stútarnir á intercoolernum voru, Þetta er ljótt en gerir sitt gagn, búið að endast 9 ár
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 13.mar 2013, 21:19
frá Grásleppa
Er bara hægt að fá svona álrör hjá bílanaust?
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 13.mar 2013, 21:49
frá villi58
Grásleppa wrote:Er bara hægt að fá svona álrör hjá bílanaust?
Skoðaðu verð á álrörum í Málmtækni.
Re: Hvar á maður að kaupa intercooler lagnaefni?
Posted: 19.mar 2013, 19:37
frá Grásleppa
Fékk þetta í málmtækni fyrir brot af því verði sem þetta kostar í Bílanaust, algjör snilld.