Síða 1 af 1
bremsur í lc 90
Posted: 28.feb 2013, 23:33
frá valdi 24
nú er cruiserinn hjá mér í bremsufrekjukasti og heldur ekki þrýsting og svo allt í einu er hann góður og síðan alveg bremsulaus er búinna að lofttæma margoft og er farinn að spá í höfuðdæluni hvort hún sé að taka loft inná sig. svo fór ég að skoða hleðslujafnarann þar er eitthver gúmmípoki sem mér sýndist dropa bremsuvökvi úr honum en samt sem áður minnkar ekki í forðabúrinu er alveg orðinn gráhærður yfir þessu. hafi þið lent í þessu eða vitið hvað gætið verið að hrjá honum.
kv Þorvaldur Jóhannesson
Re: bremsur í lc 90
Posted: 28.feb 2013, 23:37
frá Hfsd037
Mér sýnist að stimpillinn í hleðslujafnarum sé að leka og kerfið sé að draga inn á sig loft útfrá því
Þessi gúmmípoki er bara vörn fyrir stimplinum sem stillir hleðsluna eftir því hvað bíllinn er lestaður
bremmsurnar geta verið algjört rassgat ef hleðslujafnarinn er ekki að virka rétt
svo má ekki gleyma því að það er lofttappi á hleðslujafnaranum sem þarf að loft tæma líka
Re: bremsur í lc 90
Posted: 28.feb 2013, 23:49
frá valdi 24
ég einmitt fékk ábendingu á að það væri tappi þar og ég ákvað að lofttæma þar líka það var þá þegar ég sá lekann en takk kærlega fyrir þetta.