Síða 1 af 1
					
				Terrano vandræði
				Posted: 24.feb 2013, 21:37
				frá Steini H
				Sælir ég leita hér inn svona í von um hugmyndir hvað gæti verið að gefa sig þegar mér finnst þegar ég gef inn að boddýið eða dekkin leiti í aðra áttina en ef ég slaka á gjöf detti hann á réttan stað. Ég get líkt þessu við að ef ég gæfi og slakaði á víxl væri ég að dilla afturendanum.
Varð fyrst var við þetta í haust en finnst þetta versna og versna en sé ekkert að spyrnugúmíum en ég er ekki sá færasti í viðgerðum né öðru sem gæti verið að. Ég bara kann ekkert á viðgerðir og sæi ekki vandamálið þó það öskraði á mig undir bílnum.
Og fyrst ég er byrjaður að spurja þá kemur spurning um glóðakerti. Ég gruna að eitt eða fleiri séu að verða léleg ljósið slöknar svo fljótt og er erfiður í gang í kulda er mikið mál að mæla þetta og skipta um kerti ég er þá að fiska eftir tímafjöldanum og hvort þetta geti stmt að miðað við lýsinguna sé þetta að gerast með kertin.
Með von um hugmyndir að vandanum og lausnum.
Kveðja 
Steini
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 24.feb 2013, 22:43
				frá JLS
				Hugsanlega ónýtur stýrisendi í millibilsstöng, það er ekki óalgengt að það sé vesen með stöngina enda furðulega hönnuð.
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 24.feb 2013, 22:53
				frá Steini H
				Takk fyrir svarið
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 01.mar 2013, 04:32
				frá íbbi
				ég myndi skoða millibilsstöngina,  hún hefur undantekningarlaust verið í skralli í þeim terranoum sem ég hef átt. stál og stansar eiga mun betri stöng en orginalinn með smurkoppum, 
reyndar hefur það yfirleitt átt við um flest allt í framhjólastellinu,  þeir hafa einmitt átt það til að fara í aðra áttina undir inngjöf og í hina áttina við bremsu, 
ég lenti reyndar í þessu líka á óbreytta bílnum, hann fór að leyta mjög mikið á veginum, og líka að leyta til hliðar undir gjöf/bremsu. ég fann ekkert að hjólasysteminu, en ég fann slag í hjólalegunum og herti upp á þeim, hann keyrði þráðbeint á eftir, 
gæti alveg trúað að einhverjum hafi þótt það furðulegt, en þannig var það engu síður
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 01.mar 2013, 10:27
				frá Steini H
				Takk fyrir allar ábendingar en hann dillar afturendanum ekki að framan fram og það skoðaði hann maður hér og segir að það séu farin einhver gúmmí sem eru 8 talsins ef á að skipta um þau öll sem ég læt gera ég verð bara að trúa því að það sé vandamálið.
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 01.mar 2013, 11:49
				frá Rúnarinn
				Er ekki gúmmín í þverstífunni ónýt að aftan.
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 01.mar 2013, 11:54
				frá Hfsd037
				Steini H wrote:Takk fyrir allar ábendingar en hann dillar afturendanum ekki að framan fram og það skoðaði hann maður hér og segir að það séu farin einhver gúmmí sem eru 8 tallsins ef á að skipta um þau öll sem ég læt gera ég verð bara að trúa því að það sé vandamálið.
Það er mjög ólíklegt að spyrnufóðringarnar séu að valda þessu..
Besta leiðin til þess að finna þessa bilun er að fara með hann upp á lyftu og hreyfa allt, það gæti verið að þú sjáir strax hvað er að
og eins og aðrir segja hérna, skoða millbilsstöng
 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 01.mar 2013, 23:37
				frá Steini H
				Eins og ég hef áður sagt veit ég ekkert um viðgerðir né hvað geti verið að en maðurinn sagðist sjá þetta þegar hann lá og horfði á þegar ég sleptti kúplinguni í gír nokkrum sinnum ekki á liftu en ég sá samt að dekkið gekk til
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 02.mar 2013, 12:56
				frá Stebbi
				Hljómar frekar eins og það sé eitthvað brotið laust ef hann er að dilla sér svona mikið.  Ef að spyrnugúmmí væru orðin svona slæm þá kæmi smellur með hreyfinguni þegar að innri hólkurinn lemur í þann ytri.
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 03.mar 2013, 11:05
				frá Steini H
				Ég bíð spentur eftir morgundaginum því þá kemur það í ljós með þessi gúmí hvort hann hættir þessu eða ekki.
Mín vegna og viðgerðarmannsins vona ég að þetta lagist því nú þegar er búið að skipta um afturdempara sem áttu að laga þetta og thuga spyrnugúmín og þau voru sögð óslitin.
			 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 03.mar 2013, 16:18
				frá mindelo
				ef þig vantar einkvern til að gera þetta fyrir þig og fyrir mjög mjög sangjart verð er þér meira en velkomið að hafa samband við mig  getur sent mér emel og ég gævi þér þá upplisingar um síman minn og þú gætir þá hringt í mig og þá gætti ég gefið þér einkvert verð  en emelið er 
saehesturinn@simnet.is ef þú hefur áhuga
 
			
					
				Re: Terrano vandræði
				Posted: 03.mar 2013, 21:35
				frá Steini H
				Takk fyrir það vinur veit þá af þér.