Síða 1 af 1

6.5TD og nissan 4.2 gírkassi

Posted: 14.feb 2013, 17:54
frá gillih
Góðan daginn
Ég er að leita mér uppl um hvernig best er að púsla saman 6.5TD og nissan 4.2 kassa, hef þegar heyrt 3 aðferðir hvernig menn gera þetta.
1. kaupa kit frá marks4x4
2. sérsmíðað kúplingshús frá Ástralíu
3.Smíða milliplötu á milli kúplingshús og gírkassa
Sú síðasta líst mér best á og væri gaman að heyra í mönnum sem hafa gert það svo maður þurfi ekki að finna upp hjólið aftur.

Re: 6.5TD og nissan 4.2 gírkassi

Posted: 14.feb 2013, 21:19
frá Jóhann P
Sæll, ég breytti svipað eða 6,2 í Patrol og smíðaði milliplötu milli kassa og kúplingshúss svo setti ég miðjuna úr disknum frá nissan vélinni í GM diskinn,þú getur haft samb ef ég get eitthvað útskýrt frekar í 8243108 kv Jóhann Pétur