Síða 1 af 1
					
				Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 19.jan 2013, 10:44
				frá Árni Braga
				Sælir spjallarar ..
Það er smá vandamál hjá okkur með Cherokee árgerð 98 það 
Þannig að rafmagnið í bílstjóra hurðina er að kom og fara þannig að 
Ég get ekki opnað gluggan ( nema stundum) ef ég læsi með fjarst 
Þá læsast allar hurðir nema bílstjórahurð  þetta er frekar pirrandi
Er ekki einhver hér sem kannast við þetta vandamál.
erum búnir að skoða alla helvít.. víra og það er ekkert að sjá 
hver er bestur í þessu
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 19.jan 2013, 11:40
				frá ivar
				Get ekki sagt að ég kannist við þetta vandamál en ertu búinn að skoða víranna inní og kringum pulsuna sem er "í löminni" eða á samskeitum?
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 19.jan 2013, 11:59
				frá Freyr
				x2 á það sem ívar sagði, ef rafmagnsvandamál í hurð kemur og fer er mjög sennilegt að vandinn liggi í vírunum sem liggja frá hurð yfir í dyrastaf því þar er alltaf hreifing á þeim.
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 19.jan 2013, 12:04
				frá Árni Braga
				Búin að skoða það og það lítur allt vel út eins og nýtt.
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 19.jan 2013, 16:28
				frá AgnarBen
				Ég hef aðeins verið kljást við smá bögga í samlæsingum hjá mér og í tengslum við rafmagnsrúðurnar en það lýsir sér svo að þegar ég smelli takkanum á sem ´Unlock-ar´ rafmagnsrúðunum að þá springur alltaf öryggið fyrir rafmagnsrúðurnar.  Ég er farinn að gruna tengikubbinn fyrir aftan rofaborðið á bílstjórahurðinni en hann er búinn til úr einhverju gúmmíkenndu efni (eins og hart gel) en í hann tengjast allir vírarnir frá hinum hurðunum.  Þessum kubbi er síðan smellt á pinnana sem koma úr rofaborðinu að aftanverðu.  Ég held að þessi kubbur sé farinn að leiða á milli tenginga og kannski er einhver tengingin biluð hjá þér í honum.  
Grandinn er með að ég held öðurvísi rofaborð en er ekki séns að það sé bara sambandsleysi í rofaborðinu.  Hefurðu prófað að rífa takkaborðið í spað og spreyja með contact spray ?
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 19.jan 2013, 16:37
				frá AgnarBen
				
			 
			
					
				Re: Cherokee 98"
				Posted: 22.jan 2013, 17:06
				frá íbbi
				getur líka stundum virkað að kíkja á tengin sjálf á lúminu í hurðina, þar sem það stingst í samband
			 
			
					
				Re: Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 03.feb 2013, 08:54
				frá Árni Braga
				það er búið að klóra sér mikið yfir þessu en ekki komið í lag
komið með hugmyndir.
			 
			
					
				Re: Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 03.feb 2013, 14:13
				frá Árni Braga
				upp með þetta.
			 
			
					
				Re: Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 03.feb 2013, 18:14
				frá Árni Braga
				er þetta einsdæmi hér á klakanum  eða 
þora menn ekki að tjá sig með þetta ha ha ha ,
öll ráð óskast.
			 
			
					
				Re: Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 03.feb 2013, 18:33
				frá mindelo
				sæll vertu árni ég þekki bara einn árna braga og hann er ú grundaf og vorum við skólab ert það þú ?
en aðalrafmafsvírin sem geingur úr örigisbretinu inní hurðina fer sá ví fyrst í samlæsinguna svo dreifist þaðan yfir í rafmótorinn fyrir rúðuna ? 
ef svo gæti verið að samlæsingin sé byrjuð að svílja  hef lent í svipuðu á bíl sem ég var að laga og endaði með að ég þurfti að ríva samlæsingun í sundur og laga hana þá svín virkaði allt ,svo ef vírin fer fyrst í mótorin svo í samlæsinguna þá gæti verið einkvert sambandsleisi þar á milli en veðja á samlæsinguna 
kkv
beggi
			 
			
					
				Re: Cherokee 98" vesen með rafmagn í bílstjórahurð
				Posted: 03.feb 2013, 20:07
				frá Árni Braga
				Takk fyrir það Beggi minn ég er þessi Árni Braga sem þú þekkir .
ætla að skoða þetta .