Síða 1 af 1
					
				Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 09:15
				frá Spori
				Sælir vitið þið hvort olíu kælirin þarf að vera tengdur eða hvort megi bara sleppa honum og tengja rörin saman.
kveðja 
Gummi Jóh.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 10:20
				frá logimar
				Væri nú ágætt að vita hvað þú ættir við, hvaða kælir, hvaða vél, hvaða bíll, hvað eru að gera?  L.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 11:50
				frá hjalz
				Musso vél 2,9 MB 662
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 14:39
				frá Spori
				Sælir Þetta er vél úr Musso árgerð 98-99. 2,9 MB 662 tubo intercoler hi output er að sitja vélina í Bronco II grind Explorer boddý
þetta sem ég var að spyrja um með olíukælin er fyrir oliuna á vélini, útttökin er við smursíuna.
kveðja 
Gummi Jóh.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 15:52
				frá logimar
				Mundi ekki sleppa kælinum.  Þessi vél framleiðir mikinn hita og veitir ekki af allri þeirri kælingu sem hún getur fengið.  Þarf t.d. sjálfur að fara að skópa hjá mér húddið til að reyna að lofta sem mestum hita út.  Í stórferðinni í fyrra bráðnaði t.d. heitlím sem ég hafði límt gúmmípjötlu saman með, pjatlan var ofan á geimasambandinu hjá mér undir húddinu. Þannig að mitt ráð!  Ekki sleppa kælinum og komdu honum fyrir þannig að það sė gott draft í gegnum hann.   L.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 19:28
				frá Spori
				Takk fyrir upplýsingarnar reyni að finna stað fyrir hann. 
Hvar er best að fá skóp á húddið
kv 
Gummi Jóh.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 15.jan 2013, 20:25
				frá logimar
				Hafa átt skóp í VDO í Borgartúni, ÁG á kannski eitthvað, Poulsen mögulega, Benni, og svo er alltaf mögulegt að panta þetta á summit.com   Theodor Kristjánsson er svo ábyggilega með á hreinu hvar hægt er að panta skóp,,,  :)  L.
			 
			
					
				Re: Musso / Bronco II
				Posted: 16.jan 2013, 12:35
				frá Dodge
				Olíukælar eru gott stöff.. það væri nær að bæta svoleiðis á vélar sem eru framleiddar án þeirra heldur en taka þá af vélum sem eru framleiddar með þeim.