Síða 1 af 1
lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 01:12
frá Gardstadir
Var að spá hvort þð hafi einhverntímann verið smíðaður logír í isuzu crew cap 3,1 disel og hver hafi smíðað hann hafi það verið gert.
kv Brynjar Örn
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 01:14
frá jeepson
Bíddu ertu búinn að gefast uppá hilux og kominn í isuzu?
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 12:07
frá Refur
Veit um einn isuzu pickup í kringum 2000 árg sem var smíðaður lógír í, efniviðurinn i lógírinn var millikassi úr 4runner, man ekki hlutfallið í lágadrifinu á þeim kassa en það var allavega lægra en lágadrifið í Isuzu kassanum.
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 17:09
frá Gardstadir
Nei gísli gefst ekki upp á honum.
en veistu hver það er sem á þann bíl? vantar smá upplýsingar í þessum málum og væri gaman að ná á hann.
kv Brynjar
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 17:28
frá jeepcj7
Ég held við Villi séum að tala um sama bílinn sem var á skaganum í eigu Kristjáns frænda hans,og ef ég man rétt þa var sá bíll með boddýlift sem leyfði að lifta isuzu kössunum upp að aftan og stetja toy kassann fyrir aftan og snúa honum aðeins þannig að framskaftið slapp undir isuzu kassann.Kassarnir voru tengdir saman með lið/tengi og smíðað millistykki sem hélt þeim saman,en svo var bara hægt að taka toy kassann aftan af og slaka isuzu aðeins niður og nota aftur orginal sköft.
Þetta var alveg að svínvirka svona hjá Stjána ég fékk prufurúnt á sínum tíma hjá honum en skoðaði þetta aldrei vel því miður.
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 13.jan 2013, 18:10
frá Gardstadir
já þetta isuzu dót þetta er sambyggður kassi ef svo má orða það gírkassinn og millikassinn. Mér var búið að detta í hug að rífa allann millikassann innann úr endanum á isuzu dótinnu og saga lærið fyrir framdrifið af smíða so millistykki á toy kassa. Þarf að skoða þetta betur. En mundi vilja sjá mynd af þessum útbúnaði sem þú talar um.
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 14.jan 2013, 13:20
frá gaz69m
Kassarnir voru tengdir saman með lið/tengi og smíðað millistykki sem hélt þeim saman,en svo var bara hægt að taka toy kassann aftan af og slaka isuzu aðeins niður og nota aftur orginal sköft.
semsagt ef ég er að skilja þetta rétt þá tengdi hann kassana saman með stuttu drifskafti og notaði úrtakið fyrir frammhásinguna á toyo kassanum
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 14.jan 2013, 13:28
frá jeepcj7
Það var smíðað rillu stykki sem tengdi saman úttakið á isuzu og inntakið á toy og já framskaftið kom að sjálfsögðu úr toy kassanum annars hefði þetta ekki virkað sem milligír nema að taka úr lokunum. ;O)
Re: lolo í isuzu 3,1 diesel
Posted: 14.jan 2013, 13:40
frá gaz69m
jeepcj7 wrote:Það var smíðað rillu stykki sem tengdi saman úttakið á isuzu og inntakið á toy og já framskaftið kom að sjálfsögðu úr toy kassanum annars hefði þetta ekki virkað sem milligír nema að taka úr lokunum. ;O)
hehe já hitt væri vesen þannig að ég get sett lóló á izuzu 2,5 vélina sem ég verð með í rússanum