Sleppa 38" kantar á Grand Cherokee fyrir 42" dekk?

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
sigfushar
Innlegg: 40
Skráður: 17.maí 2012, 21:19
Fullt nafn: Sigfús Harðarson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee

Sleppa 38" kantar á Grand Cherokee fyrir 42" dekk?

Postfrá sigfushar » 07.jan 2013, 13:09

Er með 38" breyttan Cherokee....Dana 44 wagoneer framhásing, 9" Pajero afturhásing, Range Rover framstífur, 4link aftan custom stífur, range rover gormar og koni demparar. Bíllinn er frekar hár og get auðveldlega hækkað hann aðeins. Það sem ég er að spá er að hvort ég komi 42" undir hann án þess að lengja kantana?

kv
Sigfús




JeepKing
Innlegg: 98
Skráður: 19.júl 2010, 14:28
Fullt nafn: Jónas Olgeirsson

Re: Sleppa 38" kantar á Grand Cherokee fyrir 42" dekk?

Postfrá JeepKing » 07.jan 2013, 20:37

mér fynnst það frekar hæpið..
42" eru jú 107 cm og það sleppur ekki á milli kantana að aftan nema þú hækkir hann því meira upp eða skerð úr köntunum að utanverðu. því það eru bara um 96cm á milli kantana
en ef þér tekst þetta máttu endilega láta mig vita :D
Pajero 2.8 44"
Ford Fiesta


Jónas Fr.

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Sleppa 38" kantar á Grand Cherokee fyrir 42" dekk?

Postfrá Kiddi » 08.jan 2013, 00:38

Er Pajero hásingin í sömu breidd og Wagoneer? (bara forvitni)


Höfundur þráðar
sigfushar
Innlegg: 40
Skráður: 17.maí 2012, 21:19
Fullt nafn: Sigfús Harðarson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee

Re: Sleppa 38" kantar á Grand Cherokee fyrir 42" dekk?

Postfrá sigfushar » 08.jan 2013, 08:38

Kiddi wrote:Er Pajero hásingin í sömu breidd og Wagoneer? (bara forvitni)


Já, hún er nánast jafn breið. Wagoneer afturhásingin var aðeins mjórri heldur en framhásingin en Pajero hásingin er breiðari. Passar fínt undir, verður pínu breiðari og vígalegri :) Kem til með að senda inn myndir af smíðinni á honum, hann er að verða klár.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 56 gestir