Síða 1 af 1
2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 14.júl 2010, 16:53
frá elvarö
Góðann daginn
Mig langar að vita hvort það hafa einhverjir verið að svera púst kerfið í l200 2004 og hvort á maður að fara í 2,5" eða 3" og er einhver munur á bílum eftir svona breytingu og er hún 60 þúsund króna virði
mbk Elvar Örn
Re: 2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 14.júl 2010, 20:45
frá Izan
Sæll
Ég er ekki svo viss um að púströrsstækkun ein og sér sé að gera mikið fyrir þig. Allavega þarftu varla að svera pípuna mikið ef þú gerir ekkert annað.
Ég jók aflið í Pattanum mínum verulega og það að svera pústið var eitt af því. Fyrst sveraði ég pústið og síðan jók ég við túrbínuþrýstinginn. Tillagan mín var að með því að auka við túrbínuna þyrfti vélin líka að skila mun meira lofti en áður og sverara rör nauðsynlegt.
Nauðsynlegur búnaður ef eitthvað á að gera við olíuverkið eða túrbínuna eru mælar. Þrýstimælir á soggreinina og afgashitamælir fyrir framan túrbínuna. Þú þarft að vita hvað túrbínan má blása og sjá til þess að afgashitinn fari aldrei uppfyrir 700°C
Mér gæti fundist nóg að miða rörstærðina við mótorsstærðina. 3l vél þarf 3" pípu, 2,5l. vél ætti þá að þurfa 2,5" o.s.frv. Ég er samt með rúmlega 6l. vél og bara 3" rör sem er tæpega nóg og alls ekki ef ég væri með túrbínu.
Farðu varlega með tölvukubba nema nota afgashitamæli. Þeir eiga til að ganga nærri vélinni með auknum hita.
Kannski ættirðu að kíkja á að fá þér Hiclone allavega fyrir framan túrbínuna. Það eykur aflið ekkert rosalega en hún gæti komið fyrr inn. Það er það sem maður þarf í jeppa.
Kv Jón Garðar
Re: 2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 15.júl 2010, 13:29
frá Stebbi
Ég er með 2.5" í bílnum hjá mér og ég fann áberandi mun frá orginal pústi sem var dottið í sundur og 2.5" sem náði alla leið. Ég er á því að það er fremri hlutin sem skiptir öllu máli, það sem er fyrir aftan millikassa er ekki eins áríðandi að hafa super svert þar sem afgasið hefur kólnað heilan helling og tekur þarafleiðandi minna pláss. Hjá mér bætti í tog við það að henda gamla pústinu og fara í 2.5" en ég myndi aldrei borga 60þús meira fyrir hálfa tommu sem skilar litlu sem engu umfram á svona lítilli vél.
Re: 2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 15.júl 2010, 16:07
frá HHafdal
ég var að spá í þetta með mussoinn minn sem er með 2,9 vélinni þeir reiknuðu það út fyrir mig hjá bjb púst að þetta munaði 7 hestöflum en einhverju meira í togi ég ákvað að spara peningin og er bara með 2,5 rör alla leið og engan kút virkar bara fínt.
Re: 2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 15.júl 2010, 17:56
frá juddi
það sem menn gleima oft er sjálf fyrsta pípan frá turbínu menn stækka hana yfirleitt ekki svo þá er þetta ekki að virka sem skildi en miðað við uppgefna formúlu hér á undan þarf ég sem sagt að fara í rúlega 7" púst sem ég hef ekki trú á að sé nauðsinlegt
Re: 2,5" eða 3" púst í mmc L200
Posted: 19.júl 2010, 19:46
frá krissi200
Sæll.
Ég held að þú verði að vera með kútt undir bílnum til að fá skoðun á hann. Ég er 3'' púst undir mussonum mínum og hann er töluvert sprækkari.