Síða 1 af 1

Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 02.des 2012, 01:35
frá vidart
Málið er að ég er með '99 módel af Patrol og dauðlangar að komast meira á veturna.
Þannig að hafa einhverjir hérna hugmynd um hvað þyrfti að gera og hvað þetta mundi cirka kosta?

Væri líka áhugavert að vita hvort að einhverjir hérna séu að standa í svona breytingum þar sem ég býst við að ef ég mundi gera þetta á breytingaverkstæði þá kostaði það frekar mikið.

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 02.des 2012, 03:29
frá lecter
sæll eg vann hja breyti og breytti mörgum svona nyum bilum a 38 0g 44 þessi er 35" breyttur med minstu kantana þa verdur þu ad finna 38" kanta 2-3 adilar smidudu þa td gunnar a vagnhöfda ,, , svo þarftu klossa undir gormana eda leingri gorma en klossarnir fast ja malmsteypuni Hella i hafnarf ,, 10 cm minnir mig og fa stifu jarnin undir grindina til ad sikka stifurnar nidur hlidarstifurnar þarf ad sikka lika og stilla hasinguna rett i breidd þetta er sma mal audvitad og boddy urklipping ad framan svo loft las ad framn og 5:30 eda 40 man ekki patrol hlutföllin leingur

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 02.des 2012, 09:44
frá Árni Braga
þessum var breytt á 4. tímum af 35" á 38"
Hann er enn með 35" kanta .

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 02.des 2012, 09:50
frá Stebbi
Þessum hérna var breytt á 2 tímum með sleggju, rafsuðu og kassa af bjór. Við ætlum bara að spá í afstöðu á stýfum og stýrisgangi seinna eða aldrei ef hann keyrir fínt. :)

Image

Það skal vanda sem lengi skal standa, það þarf að gera meira en bara að koma dekkjunum fyrir.

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 02.des 2012, 13:53
frá vidart
Það er talað um að oftast þurfi að hækka á fjöðrun og boddí en stundum sé nóg að hækka á fjöðrun.
Hefur einhver hugmynd um hvað ákveður hvora leiðna sé farið?

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 03.des 2012, 00:34
frá lecter
til ad akveda hort farid se i ad hækka a fjödrum eda a boddy er bara hvad hentar hverju sinni menn med goda kunnatu sja þad strax ,,
td þegar nyr bill kemur eg hækkadi 1 modelid eins og þu ert med a 38 svo 44 eins med truberin fra izusu a 38 ,, patrol er med hasingu ad framan þa er farid i ad hækka a fjödrum i 38" en klafa bilar eins og sidari bilar eru flestir ordnir hafa svo takmarkad svigrum a fjödrum ad ef urklippan dugar ekki og kantarir þa verdur ad fara upp med body ,, en þad er stor adgerd a felstum jeppum þvi færa verdur minsta kosti 4 festingar upp an millilegs eda klossa astædan er su ad boddy festingarnar i body brotna ( wranglerinn sem eg smidadi var allur brotinn a boddy og þurfti ad taka hann af grindini og sjoda upp allar festingarnar ) þu vilt ekki lenda i þvi ad allur billinn fari ad braka ,,

sa sem hækkar sinn patrol a 4 timum ,, er ansi fljotur eg vil hann i vinnu ,, en spurningin er er billinn not hæfur a fjöll þannig og sumir voru breyttir sem 35-38 ef billinn er ekki med fram stifurnar undir grindini er spindilhallinn vitlaus ,, sidan verdur togstifan ad vera samsida styristönginni annars fjadrar hann i styrid og þu finnur kippinn upp i hendurnar ,, svo þarf ad breyta harada mælinum

vid kölludum þetta ad vinna med rassinum ,,, en eg get ekki dæmt bil sem eg hef ekki sed og vel getur verid ad þessi 4 tima bill se i lagi

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 03.des 2012, 15:47
frá vidart
Án þess að vita neitt þá er ég svolítið skeptískur á breytingu sem tekur einungis 4 tíma.

En hvaða fyrirtæki og/eða einstaklingar eru að gera þetta og hverjir eru ekki rándýrir?

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 04.des 2012, 01:08
frá lecter
ja þu verdur ad fa bilinn godan annars sleppir þu þessu ,,
þad eru nokrir ad breyta jeppum td kjartan guttarnir i mosfelsbænum .. Ægir renniverkstædi , breytir artictrucks jeppa smidjan ljonssodum vid selfoss ,svo er steini i vestur vörini i kopavogi , en fadu skriflegt tilbod fra þessum,,, med invidum felgum getur þu kanski notad 35" kantana en eg efast um ad jeppinn nai ad fjadra alveg i botn ,man ekki hvad 35" kanturinn er vidur , eg gæti gert svona breytingu en verd her bara til aramota ,fadu alla vega tilbod fra þessum jeppa smidjum ,og berdu saman verd ath med styris tjakk lika hvort þeir mæli med þvi þad hlifir styrisganginum ..þo ad þad se mest notad i 44" bilana og upp ur

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 04.des 2012, 02:04
frá lecter
eitt en ss gislason mæli med þeim eg hef ekki sed neitt nema gott fra þeim þeir breyta land rover mikid

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 04.des 2012, 02:13
frá lecter
sama hert þu ferd findu eithvern sem hefur unnid a breytinga verkstædi svo þu fair þetta sæmilega gert ,og gerdu skriflegan samning hvort sem jeppinn fer a verkstædi eda eithvern skura kall .. þetta er jeppinn þinn , sem þu ert ad fara ad eida fult af peningum i og alveg ömurlegt ad sja bilinn skemdan fyrir þer ,, eg er med stifur ur jeppa sem eithver snillingur breytti sem er med bens gumi fodringum ,, eg mun taka mindir og syna ykkur sudurnar eru svo frabærar ad mer synist sa sudumadur hafa verid med suduvelina a ca 2 i stad 80 til 100 amper sumir kunna akkurat ekki neit og eru stor hættulegir ser og ödrum

takk gani þer vel med jeppan

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 06.des 2012, 02:32
frá Freyr
Alla jafna má gera ráð fyrir að það að smíða góðann jeppa taki nokkur hundruð tíma. Hvað varðar minimum breytingu til að koma óbreyttum patrol á 38" gæti ég trúað að það taki vanan mann um eina helgi á hvora hásingu að fikta í stífuturnum og tilheyrandi, eina helgi í úrklippingu og svo eina helgi í ýmsan frágang, kanta o.fl. Miðað við þessa áætlun væri bíllinn fínn í akstri en hvergi nostrað við neitt heldur allt gert á ómerkilegasta máta. 4 helgar x tíu tíma vinnudagar = 80 klst. að lágmarki. Ef farið er í eitthvað fleira samhliða þessu, s.s. stigbretti, hlutföll, rafmagn o.þ.h. tvöfaldast tíminn um leið....


Kv. Freyr

Re: Breyta Patrol úr 35" í 38"

Posted: 07.des 2012, 00:44
frá lecter
ja eitt gott vid patrol og toyota og þær hasingar sem eru med drifid em hægt er ad skrufa ur hasinguni þegar öxlarnir eru dreignir ur ad þu getur farid med drifin til breytinga verkstædi ef þu kant ekki ad stilla drifid inn td SS gisla son er vanur gott ad fa vanan mann sem er ekki ad detta ur æfingu eg rydga alltaf i drifum sjalfur ef eg geri þetta ekki i lagan tima og ad bora styris maskinuna ef um tjakk er ad ræda