Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
DABBI SIG
Innlegg: 306
Skráður: 01.feb 2010, 00:02
Fullt nafn: Davíð Þór Sigurðsson
Staðsetning: Garðabær
Hafa samband:

Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá DABBI SIG » 01.des 2012, 19:10

Daginn,

Þetta er kannski frekar langsótt en getur einhver sagt mér hvað þessi hvíti kassi sem rauði hringurinn er dreginn utan um gerir?
Image


Þetta er prentplata úr webasto hitara ef það gagnast að vita og það kemur svona spenna ofan á þetta eins og sést á þessari mynd:

Image

Ef ekki þá má benda mér á spjallsíðu fyrir rafmagnsnörda sem gætu útskýrt það fyrir mér.


-Defender 110 44"-

User avatar

bennzor
Innlegg: 36
Skráður: 30.nóv 2012, 22:24
Fullt nafn: Benedikt Bj. Kristjánsson
Bíltegund: '91 Explorer
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá bennzor » 01.des 2012, 19:53

Það er svo margt sem þetta getur verið, fyrsta sem mér dettur í hug er hitaöryggi en ómögulegt að segja til um það af myndum, sérðu einhverja stafi, tölur eða merki? er þetta alveg kassi eða einhverjar hliðar rúnaðar?

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá Stebbi » 01.des 2012, 20:40

Þetta er örugglega hitavar eins og Benni segir og þá díoða. Það er eins og þessi spöng leggist yfir transistorinn og þessa díóðu til að halda þeim á heatsinkinu.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Höfundur þráðar
DABBI SIG
Innlegg: 306
Skráður: 01.feb 2010, 00:02
Fullt nafn: Davíð Þór Sigurðsson
Staðsetning: Garðabær
Hafa samband:

Re: Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá DABBI SIG » 01.des 2012, 20:55

Takk kærlega fyrir að nenna pæla í þessu félagar,

Vandamálið er það að myndin er af samskonar prentplötu og minni, nema hvað að kubburinn er horfinn af þeirri sem ég er að nota.
Ég tók prentplötuna úr webasto stöðinni vegna ónýts jarðtengis sem var svo lagað með lóðun. Það er búið að ganga úr skugga um að lóðningarnar séu í lagi hjá mér en vandamálið liggur í því að þetta stykki vantar allt í einu og ég veit ekkert hvar það er! Þegar ég var svo að tengja prentplötuna áðan við webasto-inn þá fór hún í gang nema bara virkar ekki eins og skyldi, þ.e. ræsir sig eins og vanalega og tekur loft inná sig og byrjar að hreinsa sig en fer svo ekki í næsta ham, þ.e. að byrja að hita glóðarkerti til að hita kælivatnið o.s.frv.
Ég var því að velta því fyrir mér hvort þessi hvíti kubbur sé að hafa áhrif á virkni stöðvarinnar eða hvort þetta skipti engu máli. Eins og sést á seinni myndinni þá kemur svona spöng ofaná þennan hvíta kubb ásamt svarta kubbinum með þrem vírunum sem tengjast honum(transistorinn). Þessi spöng er svo með gati fyrir lítinn bolta og þetta boltast beint ofaná húsið utan um webasto stöðina sem er málmur. Semsagt hvíti kubburinn liggur ofaná málmhúsi webasto stöðvarinnar.
Gæti þessi kubbur haft eitthvað með virkni stöðvarinnar að gera??? og ef svo er... er hægt að græja nýjann kubb á??

Ég skal reyna að mynda þetta betur en myndirnar hér að ofan eru af netinu, en mín prentplata er nákvæmlega eins nema hvíta kubbinn vantar!
-Defender 110 44"-

User avatar

Höfundur þráðar
DABBI SIG
Innlegg: 306
Skráður: 01.feb 2010, 00:02
Fullt nafn: Davíð Þór Sigurðsson
Staðsetning: Garðabær
Hafa samband:

Re: Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá DABBI SIG » 01.des 2012, 21:12

Stebbi wrote:Þetta er örugglega hitavar eins og Benni segir og þá díoða. Það er eins og þessi spöng leggist yfir transistorinn og þessa díóðu til að halda þeim á heatsinkinu.


Hvað áttu við með að halda þeim á heatsinkinu?
-Defender 110 44"-

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Rafmagnsnördaspurning-prentplata

Postfrá Stebbi » 01.des 2012, 22:28

Heatsinkið í þessu tilfelli virðist vera húsið utanum allt dótið. Ef að það er úr áli þá er það notað til að koma hita frá transistornum.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 24 gestir