Síða 1 af 1
þyngdardreifing jeppa?
Posted: 14.nóv 2012, 23:18
frá andrib85
ég er með jeppa sem er 2100kg og er á 44" dekkjum. hann er 360cm á milli hjóla. hvað finnst mönnum að ætti að vera fullkominn þyngdardreifing milli framm og aftur hásingar? menn hljóta að hafa skoðun á þessu hehe
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 15.nóv 2012, 00:14
frá Gunnar
svona um það bil 60/40 hefur maður heyrt
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 09:15
frá firebird400
Hvernig jeppi er með 3.6m á milli hjóla og ekki nema 2100 kg á 44"
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 10:09
frá Freyr
Sæll Andri
Minn 38" cherokee er um 2.200 kg tilbúinn í ferð. Áður var þyngdardreifingin tæp 55% framan og rúm 45% aftan. Það var ekki nógu gott hlutfall. Í brekkum var hann oft fljótur að detta niður að aftan og jafnvel fann maður það gerast á jafnsléttu. Síðasta vetur færði ég hásinguna aftur um 15 cm í viðbót (heildarfærsla = 21 cm). Ég hef ekki farið með hann á vikt eftir það en skv. býsna nákvæmum útreikningum færði þetta 50 kg af afturhásingunni á framhásinguna svo hlutfallið er um 1250/950 í ferð = tæplega 57% að framan og rúm 43% að aftan. Eftir þetta varð bíllinn allt annar í brekkum og þungu færi, ég er hættur að finna hann detta niður að aftan. Nú keyrir hann nær alltaf bara jafnt og drífur mun betur. Miðað við þetta tek ég undir að tæp 60% þyngd að framan sé passlegt en þá miða ég vil bíl kláran í ferð með öllu sem tilheyrir. Þó þarf að hafa í huga að sökum þess hve hann er langur hjá þér er hugsanlegt að þér dugi örlítið lægri % þyngdar að framan en mér því brekkur hafa ekki sömu áhrif á þinn bíl.
Kveðja, Freyr
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 11:34
frá dabbigj
firebird400 wrote:Hvernig jeppi er með 3.6m á milli hjóla og ekki nema 2100 kg á 44"
ford ranger myndi ég giska á
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 13:11
frá Freyr
Þetta er bíllinn

Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 13:55
frá olei
40/30/30 og engar refjar! ;)
En fyrir svona langan bíl mundi ég skjóta á að 55-60/45-40 hlaðinn væri æskilegt.
Þyngri framöxull er jú góður í brekkum en ef hann verður of þungur kemur það niður á drifgetu á jafnsléttu í þungu færi.
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 15:53
frá Hfsd037
Freyr wrote:Þetta er bíllinn

Sá þennan á Selfossi um daginn, virkilega verklegur Ford!
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 19:15
frá Hagalín
Setti auðvitað í vitlausann þràð
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 28.nóv 2012, 21:17
frá firebird400
Mikið hrikalega finnst mér þessi gæjalegur
Re: þyngdardreifing jeppa?
Posted: 09.des 2012, 16:25
frá andrib85
ég fór víst með rangt mál. hann er 335cm á milli hjóla en ekki 360cm. veit ekki af hverju ég var með þá tölu í höfðinu hehe. og hann vigtar 2150 kg á 44". ég vigtaði hann 1232kg að framan og 918kg að aftan 42/58 en þá á ég eftir að setja varadekkið á pallinn og aukabrúsa.