Síða 1 af 1

kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 20:10
frá dazy crazy
Halló

Ég var að leika mér í snjónum á Akureyri á "TORFASON" að troða í stæðinu þegar allt í einu kemur smellur og bíllinn drepur á sér. Þá kemur á daginn að hann kúplingin hætti að slíta. Leit á vökvann og það var enginn vökvi á forðabúrinu svo ég gróf mig undir bílinn og sá að það var allt í vökva á stimplinum sem ýtir á kúplingseitthvað.

1. Getur einhver sagt mér hvað þetta heitir þetta dæmi, veit að það heitir clutch release cylinder á útlensku en vantar að vita hvað þetta heitir á íslensku og svo hvað er eiginlega kúplingsþræll?

2. er nokkuð mál að skipta um þetta stykki er ekki alveg hægt að skipta um það bara utanfrá, þ.e.a.s. ef þetta er ekki bara lögnin, finnst samt líklegt að fóðringin á stimplinum hafi farið ef það er eitthvað þannig í honum.

3. Veit einhver hvað svona stykki kostar c.a.?

Kv. Dagur

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 20:26
frá hobo
Þú ert örugglega að tala um kúplingsþrælinn.
Ég myndi setja meiri vökva á forðabúrið og láta einhvern stíga á kúplinguna meðan þú reynir að sjá hvaðan lekur. Getur vel verið bara rörið.

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 20:59
frá dazy crazy
er þetta ekki bara bremsuvökvi?

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 21:00
frá hobo
Jú.

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 21:01
frá dazy crazy
helvíti varstu snöggur maður, ætlaði að troða þessu í hitt svarið

Image

þetta er það sem ég er að tala um

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 22:04
frá StefánDal
Þetta er kúplingsþræll. Hann er eins í nokkrum Toyotum.

Re: kúpling í hilux 90 spurning

Posted: 03.nóv 2012, 22:53
frá dazy crazy
takk fyrir svörin