Síða 1 af 1
2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 22.sep 2012, 21:50
frá StefánDal
Bíll sem ég er að spá í. Drap á sér og fer ekki í gang aftur.
Eitthvað sem mönnum dettur í hug?
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 22.sep 2012, 22:17
frá ellisnorra
Stebbi þú verður að byrja þetta aðeins betur. Neisti? Bensínþrýstingur?
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 22.sep 2012, 23:41
frá StefánDal
Sorrý veit ekki meir. Kem með meira á morgun væntanlega.
Þetta endar vonandi betur;)
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 23.sep 2012, 16:50
frá dazy crazy
Bensínlaus væri mitt fyrsta gisk... :D
annað gisk, eitthvað sem tengist vélartölvunni er fullt af spansgrænu ein og tengið fyrir loftflæðiskynjarann eða tps skynjarann
þriðja gisk væri að tímakeðjan hafi hlaupið yfir á tönn og beygt alla ventlana svo þú nærð ekki upp nógum þjappþrýstingi
fjórða gisk væri að jarðtengingin boddý-mótor væri farin og hann leiddi út um stýrisdælulögnina
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 23.sep 2012, 21:55
frá StefánDal
dazy crazy wrote:Bensínlaus væri mitt fyrsta gisk... :D
annað gisk, eitthvað sem tengist vélartölvunni er fullt af spansgrænu ein og tengið fyrir loftflæðiskynjarann eða tps skynjarann
þriðja gisk væri að tímakeðjan hafi hlaupið yfir á tönn og beygt alla ventlana svo þú nærð ekki upp nógum þjappþrýstingi
fjórða gisk væri að jarðtengingin boddý-mótor væri farin og hann leiddi út um stýrisdælulögnina
Ég fór og sótti bílinn áðan og fiktaði aðeins. Þriðja gisk er líklegast rétt hjá þér. Ætla að rífa ofan af henni á morgun og skoða þetta betur.
Vitið þið um 22RE mótor til sölu?
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 23.sep 2012, 23:22
frá sigurdurk
athugaðu þrýstinemann á fuelrailinu, lennti einusinni í því að það var sambandsleisi í honum sem orsakaði það að bensíndælan fór ekki í gang, það var í gömlum toyota hiace
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 24.sep 2012, 23:03
frá StefánDal
Þakka góðar ábendingar eins og vanalega. Ég tók lokið af kveikjuni og sá þá að hún snýst ekki þegar ég starta.
Ég ætla að gera við þetta með því að losa fjóra bolta sem festa mótorinn við grindina, losa svo helling af öðrum boltum, slöngum og plöggum. Henda vélinni og setja aðra í staðinn.
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 25.sep 2012, 00:03
frá Þorsteinn
það vantar "like" takkann!
Re: 2.4EFI (22RE) fer ekki í gang?
Posted: 25.sep 2012, 10:14
frá ingi árna
ég á altanetor og startara á svona vél ef þér vantar :D