Síða 1 af 1

Vantar uppls um millikassa.

Posted: 07.sep 2012, 12:56
frá JLS
Sælir, ég er að hugsa um að rífa Musso dísel jeppa sem ég á og setja kramið í annan bíl en mér lýst ekki á að hafa rafskiftan millikassa, hvaða millikassar passa aftan á musso "bens" skiftingu? ég held að millikassinn sem er í musso heiti BW 4408.

Re: Vantar uppls um millikassa.

Posted: 07.sep 2012, 13:30
frá kjartanbj
þetta er bara rafmótor sem setur kassan í 4x4 og lága og svona, ekkert mál að breyta því víst yfir í stöng bara

Re: Vantar uppls um millikassa.

Posted: 07.sep 2012, 20:01
frá Þorri
Öxullinn sem mótorinn er að snúa þarf að snúast 3/4 úr hring úr 2h í 4l. í venjulegum stangarskiptum kassa er þetta nær því að vera 1/3.Svo kemur öxullinn útúr kassanum að aftanverðu sem er ekki að gera þetta auðveldara. Ég hef verið að velta þessu fyrir mér og er einna helst á því að ég þurfi að smíða gír til að þetta gangi upp

Re: Vantar uppls um millikassa.

Posted: 07.sep 2012, 21:14
frá JLS
Já ég var að vonast til að einhverjir "venjulegir" millikassar pössuðu í stað þessa rafskifta kassa, þessi musso millikassi er svo sem ágætur en hann hefur tvo galla, hann er rafskiftur og það er enginn hlutlaus gír, svo það þarf að skrúfa skaftið undan til að draga bílinn. Það er kannski besta lausnin að smíða millistykki fyrir til dæmis Dana 20 kassann, eða hafa bara þennan rafskifta áfram.