Síða 1 af 1

Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 03.maí 2010, 19:40
frá Rúnarinn
Sælir er einhver hérna sem hefur rifið terrano drif fram og aftur????
vantar að fá að vita hvort það sé krumphólkur fyrir pinjóns legurnar eða hvort það sé skinnur og hvort hægt sé að nota það áfram þegar maður skiptir um hlutföll eða hvort maður þurfi að fá nýjan krumphólk eða skinnur

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 04.maí 2010, 08:24
frá Tómas Þröstur
Finnst líklegt að það sé krumphólkur. Ég myndi nota þann gamla aftur. Setja hann upp á rör sem er aðeins minna en hólkurinn og lemja á bunguna á honum allan hringinn til að fletja hann til baka. Þarf ekki mikið og prufa sig áfram. Ef þetta er gert þá er krumphólkurinn mjög nálægt réttri lengd sem er gott því það eru svo mikil átök að fá nýjan krumphólk, sem er langt frá réttri lengd í þá réttu. Ég hef allavega gert þetta svona.

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 04.maí 2010, 13:07
frá Brjótur
Sæll það er sama afturdrif í Terrano og Patrol og í því eru skinnur og ég myndi ekki veðja á að nota þær sömu það gekk ekki hjá mér, allt svo varðandi stillinguna, allt í lagi að nota skinnurnar aftur, en framdrifið þekki ég ekki í Terrano.
kveðja Helgi

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 04.maí 2010, 13:22
frá Rúnarinn
takk fyrir þetta

en viti þið hvar er hægt að fá skinnunarar annars staðar en IH???

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 05.maí 2010, 21:50
frá gislisveri
Renniverkstæði?

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 06.maí 2010, 11:01
frá Kiddi
Það eru til 2 afturdrif í Terrano, annarsvegar sama drif og í Patrol og hinsvegar minna drif. Það fer ekki á milli mála hvort drifið er á ferðinni því minna drifið er með loki aftaná rétt eins og t.d. Dana hásing

Re: Vantar upplýsingar um terrano drif

Posted: 06.maí 2010, 12:15
frá Rúnarinn
það er sama og í patrol að aftan hjá mér. Biggi í breyti skoðaði það fyrir mig