Er ekki einhver sem gæti lýst í gróflega hvað þarf að gera ef maður ætlar sér að smíða skriðgír úr millikassa í Musso.
Ég stefni þá á að nota millikassa undan Musso í smíðina.
Að smíða skriðgír
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 305
- Skráður: 01.feb 2010, 19:49
- Fullt nafn: Árni Freyr Rúnarsson
- Bíltegund: 38" Musso
- Hafa samband:
Re: Að smíða skriðgír
Er ekki einhver hér sem hefur smíðað skriðgír??
-
- Innlegg: 270
- Skráður: 31.jan 2010, 15:47
- Fullt nafn: Björn Ingi Óskarsson
- Staðsetning: Skagaströnd
- Hafa samband:
Re: Að smíða skriðgír
Ég hef nú ekki smíðað skriðgír en þetta á nú ekki að vera stór mál. Er ekki millikassinn í Musso keðjukassi? ef svo er þá er þetta raunverulega ekkert annað en að skera af kassanum þann hluta þar sem úttakið fyrir framskaftið er og loka því svo aftur. Mesta málið er að smíða lok í sárið og svo að fá einhvern góðan suðumann til að sjóða þetta fyrir þig ef þú ekki getur gert það sjálfur. Nú svo getur þetta verið eitthvert föndur í kringum öxulinn og samtenginguna á milli kassana og svo framvegis og svo að sjálfsögðu að koma þessu fyrir og breyta drifsköftunum og þessháttar. Víst væri gott ef einhver er búinn að gera þetta í svona bíl svo að ekki þurfi að finna upp hjólið að nýju í hvert skipti sem eitthvað kemur uppá í þessari smíði. Trúi ekki öðru en einhver Mussoeigandi sé búinn að gera þessa hluti og geti gefið þér góð ráð.
Björn Ingi Óskarsson
_____________________________
Nissan Patrol 260 38"
Suzuki SJ 410 Pickup 38" 1986 Seldur
Suzuki Vitara 33" 1993 R.I.P
Suzuki SJ 413JX 33" 1988 Seldur
_____________________________
Nissan Patrol 260 38"
Suzuki SJ 410 Pickup 38" 1986 Seldur
Suzuki Vitara 33" 1993 R.I.P
Suzuki SJ 413JX 33" 1988 Seldur
-
- Innlegg: 301
- Skráður: 22.apr 2010, 18:38
- Fullt nafn: Hjörvar Orri Arason
- Bíltegund: 4runner 3.0 diesel
Re: Að smíða skriðgír
Er ekki Tóti Musso búinn að gera þetta? Mér skildist að hann væri einn mesti Musso-breytingamaðurinn á klakanum.
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir