Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 278
- Skráður: 29.aug 2010, 19:48
- Fullt nafn: Þorvaldur Böðvarsson
- Staðsetning: Reykjavík

Spjallfélagar!
Hafa einhverjir hér reynslu af þessu ryðleysiefni eða einhverjum viðlíka vatnsbaseruðum ryðleysiefnum? Eitthvað sem menn mæla sérstaklega með - eða á móti?

Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Ekki reynslu af því en ég hef oft séð að kaninn er ansi hrifinn af því.
-
- Innlegg: 2654
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Það er með þetta eins og margt annað; fylgja leiðbeiningunum.
Margir finna þessu allt til foráttu á ýmsum spjallþráðum, en þegar maður les síðan aðra þræði eftir þá sést að þeir eru að lenda í vandræðum af því að þeir nenna ekki að taka öll skrefin og eru að stytta sér leið.
Eitt sem ég rakst á varðandi ryðleysi sem ég notaði í sumar;
það þarf að þvo vel með vatni og/eða terpentínu áður en maður setur málningargrunn yfir.
Þessu klikka sumir á. Og þá tollir grunnurinn illa.

- Stjórnandi
- Innlegg: 1393
- Skráður: 30.jan 2010, 22:43
- Fullt nafn: Árni Björnsson
- Bíltegund: Land Rover
- Staðsetning: Akureyri
- Hafa samband:
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
jongud wrote:Það er með þetta eins og margt annað; fylgja leiðbeiningunum.
Margir finna þessu allt til foráttu á ýmsum spjallþráðum, en þegar maður les síðan aðra þræði eftir þá sést að þeir eru að lenda í vandræðum af því að þeir nenna ekki að taka öll skrefin og eru að stytta sér leið.
Eitt sem ég rakst á varðandi ryðleysi sem ég notaði í sumar;
það þarf að þvo vel með vatni og/eða terpentínu áður en maður setur málningargrunn yfir.
Þessu klikka sumir á. Og þá tollir grunnurinn illa.
Hvaða gerð var það?
Land Rover Defender 130 38"
-
- Innlegg: 971
- Skráður: 26.maí 2012, 10:42
- Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
- Bíltegund: Daihatsu feroza
- Staðsetning: Akureyri
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Royal purple ryðleisirinn er sa besti sem er hægt að fá
head over to IKEA and assemble a sense of humor
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
það væri gaman að fá meiri umræður um svona efni,
er að fara bæta aðeins í gólf á benz með boða fínni innréttingu sem er ekki í boði að tæta alla úr. vill sleppa við sem mest slíperí

1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
-
- Innlegg: 2654
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
íbbi wrote:það væri gaman að fá meiri umræður um svona efni,
er að fara bæta aðeins í gólf á benz með boða fínni innréttingu sem er ekki í boði að tæta alla úr. vill sleppa við sem mest slíperí
Maður sleppir aldrei að slípa! Allt laust ryð þarf að fara burt!
Ryðleysi / ryðbreyti nota ég bara á það sem er eftir þegar búið er að pússa allt laust í burtu.
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
já ég veit það nú, ég er að reyna lágmarka slípun, ekki sleppa henni
ég hef séð efni sem hafa unnið hrikalega vel á ryðinu, og leyst það nánast alveg upp þannig að það var hægt að skafa það af, og létt slípa svo málminn, mér hefur bara gengið illa að finna hvaða efni þetta er
ég hef séð efni sem hafa unnið hrikalega vel á ryðinu, og leyst það nánast alveg upp þannig að það var hægt að skafa það af, og létt slípa svo málminn, mér hefur bara gengið illa að finna hvaða efni þetta er
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 278
- Skráður: 29.aug 2010, 19:48
- Fullt nafn: Þorvaldur Böðvarsson
- Staðsetning: Reykjavík
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
biturk wrote:Royal purple ryðleisirinn er sa besti sem er hægt að fá
Er þessi seldur hérlendis og þá hvar?
-
- Innlegg: 147
- Skráður: 02.feb 2010, 17:24
- Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
- Bíltegund: Cherokee ZJ
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Stál og stansar selja Royal purple olíur allavega
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"
Jeep Grand Cherokee '95 38"
-
- Innlegg: 971
- Skráður: 26.maí 2012, 10:42
- Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
- Bíltegund: Daihatsu feroza
- Staðsetning: Akureyri
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Stál og stansar selja hann og er vel þess virði
head over to IKEA and assemble a sense of humor
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 278
- Skráður: 29.aug 2010, 19:48
- Fullt nafn: Þorvaldur Böðvarsson
- Staðsetning: Reykjavík
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Takk fyrir upplýsingarnar, þær koma að góðum notum. Ætla að prófa þetta efni frá Stáli og stönsum sem fyrst, er orðinn þreyttur á ryðrykinu.
-
- Innlegg: 2654
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Járni wrote:jongud wrote:Eitt sem ég rakst á varðandi ryðleysi sem ég notaði í sumar;
það þarf að þvo vel með vatni og/eða terpentínu áður en maður setur málningargrunn yfir.
Þessu klikka sumir á. Og þá tollir grunnurinn illa.
Hvaða gerð var það?
Kannski maður svari þessu þó seint sé :)
Þetta var einhver "no-name" í naglalakkskrukku sem ég keypti í Húsasmiðjunni, bara íslenskur miði á honum.
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Mér sýnist menn eitthvað vera að rugla saman ryðleysi og ryðbreytum hérna. Ryðleysar vinna annað hvort með chelation efnahvarfi sem bindur efni í ryðleysinum við ryð og losar það frá málminum, eða sem sýra, oftast fosfórsýra, sem leysir ryðið upp en tærir málminn ekki svo mikið. Ryðbreytir er afturámóti hálfgerð málning sem á að breyta ryðinu í hlutlaust efni sem veldur ekki frekari tæringu.
Ryðbreyti hef ég ekki fengið til að virka almennilega.
EvapoRust sem er chelation efni hef ég notað en það er gagnslaust nema hægt sé að dýfa hlutnum á kaf í það, helst í 30°C í töluverðan tíma. Sýru má nota með þokkalegum árangri ef hún er svona gel sull en það er vandasamt að hlutleysa svæðið eftirá og ganga frá þannig að ekki verði frekari tæring.
Slípun er eiginlega alltaf fljótlegasta aðferðin en sóðaleg og hreint engin skemmtun frekar en hinar aðferðirnar.
Að pensla eitthvað með EvapoRust er algert bull sama hvað sölumaðurinn reynir að segja. Gæti tekið einhverja slikju en ekkert meira en það.
Ég vona að þetta hjálpi einhverjum.
Kv
Grímur

ég fann aðilan sem var með efnið sem ég minnist á hérna að ofan, ætla kaupa flösku af honum og prufa þetta
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
-
- Innlegg: 971
- Skráður: 26.maí 2012, 10:42
- Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
- Bíltegund: Daihatsu feroza
- Staðsetning: Akureyri
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Hvaða efni er það
head over to IKEA and assemble a sense of humor
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
et bara ekki viss hva . það heitir, þetta er eh breskt dót sem þeir bera à grindur,
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.
-
- Innlegg: 2654
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Evapo-rust ryðleysir og þessháttar ryðleysar
Ég ákvað að vekja upp gamlan þráð.
Evaporust er greinilega að virka ágætlega, miðað við margar hlutlausar prófanir sem maður sér á netinu, t.d. hérna;
https://www.youtube.com/watch?v=6-MC_ZEXQbw&t=6s
En þetta er nokkuð dýrt efni, á rúmlega 8 þúsund, 5 lítra brúsi.
Ég sá eitt trix varðandi notkunina, þá voru pappírsþurrkur mettaðar í efninu og lagðar á bandsagarborð sem var ryðgað. Virkaði vel, en að vísu gleymdi notandinn efninu á borðinu þannig að hann þurfti 2 umferðir.
Síðan rakst ég á nokkur vídeó þar sem verið var að bera saman evaporust við önnur efni, og aðrar efnablöndur, og það forvitnilegasta var þetta;
https://www.youtube.com/watch?v=fVYZmeReKKY
Þarna er búin til blanda úr sítrónusýru, þvottasóda og uppþvottalegi. Og þó að gaurinn sé kannski ekki hlutlaus gagnvar sinni eigin uppskrift, þá væri þetta tilraunarinnar virði.
Þvottasódi og sítrónusýra fást hjá Mistur.is og Vistvænu búðinni. Samkvæmt mínum útreikningum fengi maður rúmlega 5 lítra á 1530 krónur. (+ 5 matskeiðar uppþvottalögur)

Fann vídeó þar sem evaporust er notað á ryðgað fræsaraborð með því að metta pappírþurrkur með því;
https://youtu.be/mwUNkOPbaE0?t=138
https://youtu.be/mwUNkOPbaE0?t=138
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur