Passa LC öxlar í Hilux?

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Passa LC öxlar í Hilux?

Postfrá hobo » 12.nóv 2014, 20:20

Passa LC 90 framöxlar í Hilux 2004 árgerð?
Mér skilst að Hilux öxlarnir séu með flangs við framdrifið en LC öxlarnir stingist beint inn í drifið. Er aðallega að spá hvort ytri liðurinn sé eins á milli bíla.




grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Passa LC öxlar í Hilux?

Postfrá grimur » 13.nóv 2014, 00:04

Veit ekki alveg með það, en ef þig vantar öxla eins og.voru í Hilux og 4Runner þá á ég safn af svoleiðis..

User avatar

jongud
Innlegg: 2699
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Passa LC öxlar í Hilux?

Postfrá jongud » 13.nóv 2014, 08:11

Skoðaðu hérna;
http://www.f4x4.is/spjallbord/umraeda/toyota-patanumer/
Flettu upp á partanúmerinu og farðu svo í "krosstékkun" (http://www.toyodiy.com/parts/xref)
Þá geturðu séð hvort þetta passar á milli.

User avatar

jongud
Innlegg: 2699
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Passa LC öxlar í Hilux?

Postfrá jongud » 13.nóv 2014, 09:32

Ég fletti þessu upp :)
http://www.toyodiy.com/parts/xref?s=43430-35030&mU=on&mE=on
Hægri öxull er með partanúmer 43430-35030 og er notaður í 4runner frá 11/1995 til 07/2002
Sami öxlull er notaður í Landcruiser 90 frá 04/1996 til 08/2002
Hilux 2004 virðist því miður vera allt önnur Ella;
http://www.toyodiy.com/parts/xref?s=434 ... U=on&mE=on
Mér sýnist allar útgáfur af '04 Hilux nota sama öxul og þeir passa ekki í neina aðra bíla, hvorki 4runner eða Cruiser.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur