Hvar er þetta tekið
Posted: 18.mar 2012, 14:53
frá lc80cruiser1
Re: Hvar er þetta tekið
Posted: 19.mar 2012, 08:24
frá Tómas Þröstur
Minnir mig á vörðu sem er á Sprengisandi ca við norður/suður vatnaskilin. Hallgrímsvarða nálægt Fjörðungsöldu.
Re: Hvar er þetta tekið
Posted: 19.mar 2012, 14:27
frá AgnarBen
sælir
Smá fróðleikur um Hallgrímsvörðu: Hún var hlaðin til minningar um Hallgrím Jónasson, einn af brautryðjendum ferðalaga á hálendinu og félaga í FÍ og síðar einn af stofnendum Útivistar.
Vel af grjóti veðurbörðu
væri ég tengdur mínu landi,
ef mér hlæði einhver vörðu
uppi á miðjum Sprengisandi.
Þessa vísu orti Hallgrímur eitt sinn á ferðalagi um Sprengisand og var varðan reist af félögum í Útivist á miðjum Sprengisandi með vísun í hana.