Síða 1 af 1

Vélagetraun 3 (lokið)

Posted: 28.apr 2010, 09:19
frá ofursuzuki
Hér kemur ein frekar létt. Veit einhver hvaða vél þetta er.
Image

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 14:04
frá ofursuzuki
Svona til að gefa smá vísbendingu þá er þetta ekki Amerísk V8 vél.

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 17:07
frá jeepson
Er þetta ekki vél úr range rover?

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 17:30
frá Brjótur
Jú manni finnst þetta benda til Range Rover svona með tilliti til hver sendir ;)

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 17:36
frá ofursuzuki
Nei ekki er þetta nú alveg Rover mótor. Þessi er að vísu 3,5 lítra eins og Rover vélin en skilar aðeins 120 hestöflum
við 4000 sn/mín og vigtar 235 kg. Ég er ekki viss hvort nokkur bíll var fluttur inn með þessari vél en ef svo er þá hafa
þeir ekki verið margir.

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 18:25
frá stebbi1
Ekki er þetta ættað úr jagúar?
bara skot útí loftið svona fyrst þetta er ekki alveg rover mótor

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 18:50
frá ofursuzuki
Vélin er ekki bresk, raunar er hún smíðuð af Japönum en hefur held ég aldrei í japanskan bíl komið.

Re: Vélagetraun 3

Posted: 28.apr 2010, 19:03
frá olihelga
Þekki þetta ekki neitt en myndi gíska á vél úr Bedford eða Leiland, byggi það á litlu módeli eða líkani af vörubíl neðst á myndinni.

Kv, Óli

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 00:16
frá ofursuzuki
Hvað á ég að trúa því að þið ætlið að gefast upp á þessu.
Þessi vél var framleidd í stuttan tíma og þá notuð í hertrukka og litla pallbíla.
Vélin var sögð hönnuð þannig að skellt hafi verið saman tveim 4cyl mótorum frá þessum
framleiðanda og útkoman var þessi mótor.

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 07:06
frá hobo
Ég var að komast að því að ég er ekki eins gáfaður hinum megin við borðið.. :)

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 18:19
frá draugsii
maður er nú orðin frekar forvitin um hvaða vél þetta er

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 18:24
frá Brjótur
Er þetta semsagt International hálf átta og eða átta cyl?

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 19:48
frá ofursuzuki
Jæja ekki líst mér á það, ætlar virkilega enginn að ráða þessa gátu.
Ég hélt þetta væri svo auðvelt, en svona er það hlutirnir eru einfaldir þegar maður veit þá.
Allra síðasta vísbending, vél þessi var meðal annars í bílum sem báru nöfn eins og Snabbe og Trygge.
Nú hljótið þið með aðstoð Google að geta fundið út úr þessu.

Re: Vélagetraun 3

Posted: 29.apr 2010, 19:52
frá draugsii
volvo b36 ?

Re: Vélagetraun 3 LOKIÐ

Posted: 29.apr 2010, 19:58
frá ofursuzuki
Já sæll, Volvo var það, google klikkar ekki. Þessi mótor var framleiddur í Japan af Yamaha fyrir Volvo.
Hugmyndin var að setja þetta í nýjan bíl sem var í hönnun hjá þeim einhvertímann upp úr 1950 en svo varð ekkert
af því og þessar véla enduðu í þessum litlu vörubílum með þessi líka skemmtilegu nöfn.