Síða 1 af 1
Myndagetraun XI (lokið)
Posted: 27.apr 2010, 07:31
frá hobo
Vonandi vefst þessi fyrir ykkur :)
Hvað heitir bungan á miðri mynd?

..og takið eftir jeppamenn, það er slóði!!
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 08:05
frá Páll Ásgeir
Þetta er erfitt. En ég held að við séum á Suðurlandi.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:07
frá Stebbi
Ég ætla bara að fá að nota tækifærið og bjóða Pál velkomin á síðuna og í góðan félagsskap jeppaeigenda. Vonandi verða samskiptin bara af hinu góða enda á ég ekki von á öðru.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:16
frá hobo
Mjög nálægt þeim stað sem myndin er tekin, er stöðuvatn.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:24
frá Páll Ásgeir
Þakka góð orð frá Stefáni.
Mér finnast svona getraunir afar skemmtilegar en þessi er í þyngra lagi. Hvernig væri að fiska upp fleiri vísbendingar. Ef það er stöðuvatn í grenndinni dettur mér Langavatnsdalur í hug en átta mig samt ekki á því hvað fjallið á myndinni heitir.
En það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá myndina var að þetta væri á leiðinni af Rótasandi niður á Laugarvatn og þá væri þetta Efstadalsfjall sem blasir við.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:49
frá hobo
Myndin er ekki tekin frá vegi heldur ofan af múla einum á vesturlandi.
Þú ert orðinn heitur Páll.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:50
frá Ofsi
Mér datt fyrst í hug Staðarhnúkur og myndin væri tekin ofan af Beilárheiði eða Réttarmúla og þá væri Langavatn til hægri.
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:55
frá hobo
Ofsi wrote:Mér datt fyrst í hug Staðarhnúkur og myndin væri tekin ofan af Beilárheiði eða Réttarmúla og þá væri Langavatn til hægri.
Rétt var það. Þarna stalstu þessu!
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 18:56
frá Ofsi
Sorrý :-(
Re: Myndagetraun XI
Posted: 27.apr 2010, 23:05
frá juddi
Tek undir það að ekki er slæmt að hafa menn eins og Pál virka á þessari síðu, en nú bíð ég og örugglega fleiri eftir því að Páll fjárfesti í Enduro hjóli og skrifi enn eitt meistarverkið í flóru ferðabóka um land vort.