Síða 1 af 1

Myndagetraun XXX (lokið)

Posted: 19.aug 2010, 17:24
frá hobo
Hvar er þetta?

Image

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 19:10
frá Freyr
Verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvar þessi mynd er tekinn en ég er ánægður með þetta myndagetraunaframtak (vá, ekta orð til að nota í hengimann) þitt, gaman að spreyta sig á þessu.

Kv. Freyr

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 19:30
frá hobo
Ég þakka stuðninginn, ég held áfram að taka myndir og skella þeim inn.
Svo hefur mér einnig þótt það gaman þegar aðrir hafa skellt inn getraunum því það er eins og þú segir, gaman að spreyta sig á þessu.

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 20:44
frá Páll Ásgeir
Ég veit ekki hvar þetta er en ætla samt að giska á Húnaþing- nálægt Vatnsnesi

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 21:31
frá HaffiTopp
..

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 21:58
frá hobo
Páll Ásgeir wrote:Ég veit ekki hvar þetta er en ætla samt að giska á Húnaþing- nálægt Vatnsnesi


Þú ert vel volgur eins og vanalega, veit ekki hvort ég eigi að vera með meiri nákvæmni en gaman væri að fá nafnið á þessarri sandbreiðu sem er merkt á flest kort.
Vatnið hægra megin á myndinni er vatn en ekki sjór.

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 19.aug 2010, 23:16
frá tampon
gæti verið að þessi mynd sé tekin á íslandi ?

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 20.aug 2010, 09:19
frá Páll Ásgeir
Vötnin heita Hóp og Sigríðarstaðavatn. Sandarnir heita Þingeyrasandur austan við útfallið úr Hópinu en Sigríðarstaðasandur að vestan.
Líklega er það Sigríðarstaðavatn sem sést glitta í á myndinni.

Re: Myndagetraun XXX

Posted: 20.aug 2010, 09:26
frá hobo
Páll Ásgeir wrote:Vötnin heita Hóp og Sigríðarstaðavatn. Sandarnir heita Þingeyrasandur austan við útfallið úr Hópinu en Sigríðarstaðasandur að vestan.
Líklega er það Sigríðarstaðavatn sem sést glitta í á myndinni.


Sigríðarstaðasandur er staðurinn. Þarna er algjör rallíslóði langt út á sandinn og mjög gaman að bruna þetta, lítil hætta á landspjöllum í sandinum.
Þarna sem myndin er tekin er nokkra km langt klettabelti sem er ekkert nema stuðlaberg, mjög flott.