Síða 1 af 1

Myndagetraun nr. 61 (lokið)

Posted: 11.júl 2012, 09:23
frá hobo
Hvar er þetta tekið?

Image

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 11.júl 2012, 10:33
frá AgnarBen
Þetta er Borgarfjarðarlegt að sjá, amk Vesturlandslegt en ég átta mig ekki alveg á hvar nákvæmlega. Þetta er ekki Varmaland er það ?

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 11.júl 2012, 12:14
frá hobo
Nei ekki Varmaland.

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 11.júl 2012, 15:00
frá -Hjalti-
Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi / Hótel Eldborg

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 11.júl 2012, 16:14
frá hobo
Það var rétt fjandakornið ;)

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 01:51
frá -Hjalti-
hobo wrote:Það var rétt fjandakornið ;)


wuuhúúú , Hvað er í verðlaun Hörður :)

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 09:28
frá hobo
Stolt og heiður í eitt ár.

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 12:57
frá AgnarBen
En fyrir annað sætið, ég hlýt að hafa náð því ?

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 13:17
frá hobo
Það eru 25% líkur að giska á réttan landshluta, eða í rauninni meira þegar menn hafa rýnt í mínar getraunir hingað til. En að nefna réttan stað, það eru örugglega 0,0001% líkur miðað við fjölda örnefna, ef giskað er.

Þú færð því eitt stutt klapp frá mér :)

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 21:57
frá dazy crazy
Og rauða húsið þarna á bakvið er kornþurrkunarstöð í eigu félags á svæðinu og er kallað Akurholt, ef einhver vildi vita það hehe

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 22:11
frá hobo
dazy crazy wrote:Og rauða húsið þarna á bakvið er kornþurrkunarstöð í eigu félags á svæðinu og er kallað Akurholt, ef einhver vildi vita það hehe


Takk, við vorum einmitt að spá í hvers konar hús þetta væri þegar við keyrðum löturhægt framhjá :)

Re: Myndagetraun nr. 61

Posted: 12.júl 2012, 23:33
frá AgnarBen
hobo wrote:Það eru 25% líkur að giska á réttan landshluta, eða í rauninni meira þegar menn hafa rýnt í mínar getraunir hingað til. En að nefna réttan stað, það eru örugglega 0,0001% líkur miðað við fjölda örnefna, ef giskað er.

Þú færð því eitt stutt klapp frá mér :)


Hvur fjandinn ........ jæja, óska eftir því að það verði afhent næst þegar við hittumst á fjöllum í vetur :)