Síða 1 af 1
track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 25.mar 2010, 12:51
frá Polarbear
Góðan dag.
á einhver trakk af algengri leið frá sólheimajökli og yfir á Mýrdalsjökul??
þætti vænt um að fá sent svona ef einhver á á lalli (at) slepja.com
fyrirfram þakkir,
Lalli
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 25.mar 2010, 23:10
frá RamLing
Vantar einnig track
unihrafn@mitt.is, hvernig er annars færðin þarna upp fyrir jeppa ?
Hvað er maður c.a lengi uppað svæðinu, er að fara á laugardaginn, eru eitthverir hér að fara þá ?
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 00:06
frá krissi200
Góðan daginn.
Ég var að spá í skella mér á laugadaginn. Hvernig er fæðrinn upp? Á einhver track af leiðinni? Er möguleiki að fara upp á, 35'' læstur framan og aftan?
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 00:44
frá Freyr
Hef Þessar uppl um færið:
Í gær fóru jeppar upp frá Sólheimasandi um kvöldmatarleytið og um miðja nótt voru þeir ennþá langt frá gosinu inn á miðjum jökli.
Síðustu eða þarsíðustu nótt (ekki viss) fór vanur maður á 44" Landrover frá Sólheimasandi og snéri við stuttu eftir að hann kom upp á hásléttuna á jöklinum því færið upp var mjög þungt og lagaðist ekki eftir því sem ofar dró.
Tveir 38" bílar áttu mjög erfitt með að komast upp og snéru svo við útaf einherju bilana veseni.
Ég hef þetta ekki frá fyrstu hendi heldur er þetta gegnum einhverja milliliði en kemur úr 3 mismunandi áttum. Hinsvegar ber öllum saman um að færið sé erfitt því snjórinn þjappast illa.
Freyr
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 19:38
frá JonHrafn
Maður er nú búinn að heyra margar útgáfur af færinu þarna á jöklinum.
Við feðgarnir ætlum að skella okkur á morgun, ætli það verði ekki mikil traffík upp frá sólheimajökli.
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 19:54
frá indjaninn
ætla renna þarna uppeftir í fyrramálið væri rosalega fínt að fá track.Er enginn áhugi á samfloti uppeftir í fyrramálið ?
tht_@msn.com
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 20:01
frá JonHrafn
Tja , ég og pabbi ( hilux 38") og uni bróðir (cherokee 38) ætlum af stað úr keflavík 7.30. Ætli við verðum ekki við jökulsporðinn um 9.30 - 10.00
Ætli það verði ekki nóg af hjólförum til elta uppeftir, uni sagðist samt vera með sleðatrack og eitthvað jeppatrack.
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 20:15
frá indjaninn
ég verð þarna um svipað leiti lýtur út fyrir að ég verði einbíla þannig maður reynir kanski að fá að fljóta með ykkur er á 38" cherokee
tht_@msn.com
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 20:37
frá Magnús Ingi
Bara svona því að þið eruð að velta fyrir ykkur færðini er hún bara svona þokkaleg á jöklinum fór þarna upp í gærkveldi og var aðeins laust fyrst þegar maður fór að klífa á jökulinn og svona svoldið þungt á honum miðjum en svo lagast færið þegar maður fer að nálgast gostöðvar. Vorum ekki nema einhvert 1-2 tíma að keyra að gosini frá jökulröndini
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 20:39
frá JonHrafn
indjaninn wrote:ég verð þarna um svipað leiti lýtur út fyrir að ég verði einbíla þannig maður reynir kanski að fá að fljóta með ykkur er á 38" cherokee
tht_@msn.com
Vertu bara í bandi um 9leitið .. 6941259
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 26.mar 2010, 22:33
frá snowflake
sælir
það er track á
www.landsbjorg.iskv_snowflake
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 27.mar 2010, 00:24
frá Lindi
Haldiði að maður komist up jökulin á góðum 38" ólæstum Eeconaline?
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 27.mar 2010, 10:45
frá Magnús Ingi
ef ökumaðurinn er góður er það sennilega hægt ég keyri þarna um allt á 38 4runner ólæstum reyndar svoldið lettari bíll en ég hugsa að þú hafir það alveg
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 27.mar 2010, 12:38
frá Cooolerinn
Hvað haldið þið um að fara á 35" breyttum Trooper á góðum belgmiklum dekkjum?
Er nú ekki með mikla reynslu af jöklum, en búinn að keyra Kjöl margoft í vetrarfærð og með mikla reynslu af akstri í snjó.
Endilega látið í ykkur heyra, er að spá í að fara eftir trackinu frá Landsbjörg.
Kveðja,
Cooolerinn
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 27.mar 2010, 15:22
frá snowflake
Er einhver leið að fá þennan feril á texta skrá þannig maður geti sett þetta handvirkt inní tækið?
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 27.mar 2010, 19:08
frá frikki
Ætlar einhver upp jökul á morgun endilega láta vita kv
Frikki Simi 820 8801
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 28.mar 2010, 10:11
frá Hansi
Cooolerinn wrote:Hvað haldið þið um að fara á 35" breyttum Trooper á góðum belgmiklum dekkjum?
Er nú ekki með mikla reynslu af jöklum, en búinn að keyra Kjöl margoft í vetrarfærð og með mikla reynslu af akstri í snjó.
Endilega látið í ykkur heyra, er að spá í að fara eftir trackinu frá Landsbjörg.
Kveðja,
Cooolerinn
Vorum þarna í gær með 35" Trooper og 35" Pajero. Hleyptum úr dekkjum niður í ca. 4-5 psi. Komumst alveg alla leið en Trooperinn festi sig nokkrum sinnum þegar búið var að spilla förunum. Mæli ekki með að fara á honum nema í fylgd með stærri bíl. Færið er þannig að snjórinn þjappast illa og bíllinn sest um leið ef eitthvað ber útaf. Það voru 2 38" bílar sem leyfðu okkur að vera í samfloti með sér og það bjargaði okkur gjörsamlega, kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. (nú langar mig alveg rosalega í allavega 38" bíl eða stærri)
En þú fylgir förunum og er laginn þá á þetta að geta sloppið vel. Pajeróinn festi sig t.d ekki fyrr en það var ætt út úr förunum í bjartsýniskasti.
Svo voru fullt af súkkum þarna, þær gjörsamlega æddu áfram eins og skotið úr teygjubyssu, frábærir bílar.
Kveðja Hans
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 31.mar 2010, 16:18
frá Unnar
Ef einhver á þetta track þá væri fínt að fá það sent á
unnsi@islandia.isÉg geri ráð fyrir að fara þarna upp á laugardagsmorgun veit ekki alveg kl hvað
Takk takk
Unnar
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 31.mar 2010, 17:49
frá eidur
Unnar wrote:Ef einhver á þetta track þá væri fínt að fá það sent á
unnsi@islandia.isÉg geri ráð fyrir að fara þarna upp á laugardagsmorgun veit ekki alveg kl hvað
Takk takk
Unnar
Það er nú lágmark að lesa þráðinn sem þú ert að svara. Hér ofar er vísað á
http://www.landsbjorg.is, nánar tiltekið
http://www.landsbjorg.is/Article.aspx?c ... wDate=true.
Einnig hægt að finna track síðan um síðustu helgi hér:
viewtopic.php?f=2&t=635#p2928Annars hengi ég hér við þennan þráð sömu leið og járni er með.
Re: track sólheimajökull - mýrdalsjökull
Posted: 31.mar 2010, 23:17
frá JonHrafn
Finnst rétt að benda á þetta.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/31/ny_jokulsprunga_i_godabungu/Manni var farið að hlakka til að fara aftur á Laugardag, spurning hvernig það fer.