Síða 1 af 1
Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 08.mar 2015, 10:21
frá siggi64
Sælir/ar
Mig langar að bera fram spurningu hér,fæ ekki svar á klúbbasíðunni...Ég er með 5/8 VHF topp sem er með gorm neðst hvernig mælir maður ! og hvað á lengdin að vera á stönginni þessi toppur er gefin upp fyrir 144-226 MHz í umbúðum og er c.a. 140 cm heildarlengd
Mbk Siggi K
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 08.mar 2015, 14:42
frá Seraphim
Sæll
Áttu ekki blaðið sem fylgir þessu með klippiupplýsingum?
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 08.mar 2015, 21:11
frá siggi64
Nei það fylgdi ekkert svoleiðis..hef lesið að þetta sé 122-123 cm var bara að spá hvort það sé öll stöngin eða mælt að gormi ? kanski best að fá bara fagmann í þetta...
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 08.mar 2015, 22:50
frá Lindemann
ég á svona loftnet, minnir að það sé nálægt 125cm, en get mælt það á morgun
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 09.mar 2015, 00:30
frá siggi64
Takk fyrir það...
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 04:42
frá alvegsama
var einmitt að komast að því að netið hjá mér var vitlaust klippt.
það á að mæla frá gormi. þeas ekki gorminn með.
Siggi hjá Radioraf kann þetta og lílega best að fara til hans.
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 11:01
frá GFOTH
full lengd á rétt kliftu loftneti er 1,25
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 14:20
frá Lindemann
Mitt loftnet er 126,5cm enda í enda.
Lengdin fer náttúrulega eftir því á hvaða tíðni talstöðin er notuð. Loftnetið sem ég er með var ekki notað fyrir 4x4 rásirnar svo það getur verið í aðeins annari lengd þessvegna.
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 14:26
frá Lindemann
http://home.comcast.net/~wxtofly/wavecalc.htmÞetta er calculator fyrir bylgjulengdi.
Tíðnin á rás 45 er 153.1mhz og samkvæmt þessari reiknivél er 5/8 lengd á þeirri tíðni 122,4cm. Það er lengdin sem maður myndi vilja fyrir rás 45(mælt frá gormi). Ástæðan fyrir annari lengd getur verið afþví menn reyna að fara einhvern milliveg afþví eitt loftnet hentar aldrei 100% fyrir allar rásir sem maður er með.
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 16:54
frá Stjóni
Ég myndi halda að fagmannlegast sé að gera þetta með standbylgjumæli, annað væri svolítið gisk.
Re: Lengd á 5/8 neti fyrir vhf
Posted: 10.mar 2015, 19:37
frá siggi64
Sælir já Jakob ég fann svipaða töflu og þú ert með og það eru sömu tölur þar...ætti að vera óhætt að fara eftir þessu held ég og miða við 153 mhz Mbk Sig K