Síða 1 af 1
Vöð: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 24.aug 2014, 19:36
frá GPSmap.is
Hæhæ,
Ég vil óska eftir GPS staðsetningar á þekktum vöðum (flúðir eða vötn sem skera vegarkafla í sundur sem krefst 4x4 jeppa og ítrustu varkárni) frá notendum hérna.
Hugsunin er að setja inn slíkar merkingar í næstu útgáfu af Íslandskorti GPSmap.is.
Endilega póstið hér, eða sendið beint á mig á
gps@gpsmap.is eða notið
http://www.gpsmap.is/gps/mapeditor.htm til að skrá þá (krefst þess að vera notandi hjá GPSmap.is til að skrá).
Takk fyrir!
Re: Vaðir: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 25.aug 2014, 08:24
frá jongud
Hérna er listi:
http://www.gopfrettir.net/g_vinir/ferdir/_vod.htm#vadatalAnnars skaltu endilega hafa samband við Jón Garðar Snæland, hann er með notendanafnið "Ofsi" hér á spjallinu.
Hann hefur skrifað margar ferðabækur um hálendi Íslands og er örugglega með heilan gagnagrunn í kollinum yfir vöð.
Re: Vaðir: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 25.aug 2014, 09:00
frá Ýktur
Vöð yfir jökulár geta verið síbreytileg þannig að það er mjög vafasamt að negla þau niður á kort sem menn kannski keyra eftir í blindni. En svo eru önnur sem aldrei breytast þar sem þarf að taka hátt í 90 gráðu beygju í miðju vaði til að lenda ekki á kafi. Þannig að það þarf að velja þau vöð vel sem fara á kort :)
Re: Vaðir: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 26.aug 2014, 23:53
frá GPSmap.is
Takk kærlega Jón fyrir listann.
Ýktur wrote:Vöð yfir jökulár geta verið síbreytileg þannig að það er mjög vafasamt að negla þau niður á kort sem menn kannski keyra eftir í blindni. En svo eru önnur sem aldrei breytast þar sem þarf að taka hátt í 90 gráðu beygju í miðju vaði til að lenda ekki á kafi. Þannig að það þarf að velja þau vöð vel sem fara á kort :)
Takk Ýktur, ég skil þig 100%. Ég hef í gegnum tíðina verið með svipaða skoðun. En ég taldi núna að merkingar, þó þær séu takmarkaðar og hugsanlega rangar, þá í heildina er að mínu mati betra að hafa merkingar til að vara menn við aðstæðum sem kunna að vera. T.d. er annars ekkert sem bendir til að það séu vaðir á Sprengisandsleið frekar en yfir Kjöl (þar sem eru engar vaðir).
Re: Vaðir: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 26.aug 2014, 23:55
frá Kiddi
Vöð...
Re: Vöð: GPS staðsetningar á þekktum vöðum
Posted: 27.aug 2014, 14:03
frá Ýktur
Ég gæti hafa misskilið þig. Þú vilt semsagt setja [4x4] merki eða álíka þar sem eru vöð en ekki setja leiðina yfir vaðið á kortið :)