Síða 1 af 1
VHF á plasttopp??
Posted: 05.sep 2013, 14:46
frá Tollinn
Sælir félagar
er eitthvað sem mælir gegn því að setja VHF-loftnet á pallhús á Hilux?
Heyrði einhvers staðar að það væri betra að setja þetta á boddýið sjálft til þess að nýta boddýstálið sem móttakara eða eitthvað álíka, vildi bara tékka á þessu.
Eins væri ég til í að kaupa notað loftnet, botn og kapal ef einhver á
kv Tolli
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 05.sep 2013, 18:16
frá Haffi
Allt í lagi EF þú setur blikkplötu undir botninn og tengir hana við jörð í bílnum.
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 08:27
frá jongud
Haffi wrote:Allt í lagi EF þú setur blikkplötu undir botninn og tengir hana við jörð í bílnum.
Passaðu líka að hafa blikkplötuna af réttri stærð, það hefur áhrif á standbylgjuna kringum loftnetið. Kringlótt plata væri best, en ég man ekki hvað hún þarf að vera stór, líklega kringum 40cm í þvermál.
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 08:36
frá snöfli
Spurning hvort frambretti sé þá ekki orðið betra. Að vísu stenfuvirkt. Er toppurinn yfir ökumanni læíka úr plasti? l.
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 10:50
frá Tollinn
snöfli wrote:Spurning hvort frambretti sé þá ekki orðið betra. Að vísu stenfuvirkt. Er toppurinn yfir ökumanni læíka úr plasti? l.
Nei en ég er þegar með CB-loftnetið þar, er þó að spá hvort ég eigi ekki bara að setja VHF-loftnetið þar fyrir aftan, þ.e. aftast á farþegarýmið.
kv Tolli
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 13:13
frá cameldýr
Eða færa CB á brettið, gerir ekkert til þó það sé smá stefnuvirkt og VHF loftnetið upp á topp í staðinn fyrir CB loftnetið.
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 19:16
frá nobrks
Eða fá sér bara bátaloftnet
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 06.sep 2013, 19:51
frá snöfli
Sammála Cameldýrinu:)
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 08.sep 2013, 15:23
frá Tollinn
Já, ég finn eitthvað út úr þessu
Þakka góð svör.
kv Tolli
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 08.sep 2013, 21:36
frá Izan
Sæll
Bara henda CB loftnetinu og setja VHF í staðinn.
Það er hægt að smíða plötu eða líma álpappír upp í toppinn en möguleikarnir að að það verði ekki gott eru of miklir.
Kv Jón Garðar
Re: VHF á plasttopp??
Posted: 09.sep 2013, 21:04
frá nonni k
viewtopic.php?f=32&t=19542Þessi loftnet geta staðið à plasti þurfa ekki speglun undir sig