VHF handstöð??????

Fyrir allt sem tengist leiðsögu- og fjarskiptatækjum.

Höfundur þráðar
fritz82
Innlegg: 125
Skráður: 25.apr 2012, 18:03
Fullt nafn: Friðrik Sigurðsson
Bíltegund: LC 60 38", 4,2 Diese
Staðsetning: Rvk

VHF handstöð??????

Postfrá fritz82 » 09.jan 2013, 17:32

Er vhf handstöð að sleppa í jeppa upp á samband að gera?


Virðingarfyllst Friðrik :)

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: VHF handstöð??????

Postfrá Stebbi » 09.jan 2013, 17:56

Það fer eftir því hvað þú vilt geta kallað langt í burtu. Handstöð er fín á milli bíla og á afmörkuðu svæði eins og upp langjökul eða á opnum svæðum. Ef þú vilt kalla í endurvarpa í talsverðri fjarlægð þá er bílstöð málið uppá öryggi. Handstöð er yfirleitt um 5w en bílstöðvarnar 25w í sendistyrk.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: VHF handstöð??????

Postfrá kjartanbj » 09.jan 2013, 19:43

Handstöð getur alveg virkað fínt, vel á milli bíla og svona, yfirleitt hægt að hlaupa upp á næsta hól til að á sambandi við endurvarpa
ég get náð sambandi við endurvarpann á hlöðufelli úr stofunni hjá mér heima í keflavík.. það er töluverð fjarlægð eða um 111km í beinni línu, mér finnst það ekkert slæmt
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: VHF handstöð??????

Postfrá Stebbi » 09.jan 2013, 20:14

Það er mjög gott að ná að lykla inn Hlöðufell frá Keflavík á handstöð og gæti skýrst af því að það er langt í næsta fjallgarð eins og Esjuna og Hengilssvæðið og þú sért komin útfyrir skuggan frá þeim fjöllum. Ég hef síðustu ár verið bæði með handstöð og bílstöð og það hefur oft komið fyrir að handstöðin nær ekki sambandi þegar bílstöðin gerir það fínt en þá er það í fjallendi og dölum, en handstöðin heyrir alltaf.
Handstöð er mjög góður kostur ef maður er ekki að ferðast mikið einn á hálendinu.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Höfundur þráðar
fritz82
Innlegg: 125
Skráður: 25.apr 2012, 18:03
Fullt nafn: Friðrik Sigurðsson
Bíltegund: LC 60 38", 4,2 Diese
Staðsetning: Rvk

Re: VHF handstöð??????

Postfrá fritz82 » 09.jan 2013, 20:32

Þakka ykkur kærlega fyrir þetta drengir :)
Virðingarfyllst Friðrik :)


Til baka á “Ferlar og fjarskipti”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 4 gestir