Síða 1 af 1

hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 10.okt 2011, 17:34
frá gaz69m
hvað voru menn að setja stór dekk á rússan sjálfsagt fer minn aldrei á stærra en það sem var af sömu stærð og lapplander kom á( ógurlegar blöðrur á þeim tíma ) en eins og gaz 69a bíllin sem sigurgeir fyrverandi formaður landsbjargar keyrði um á, var hann á orginal hásingum eða einhverjum öðrum. ivankassavisky, grænagróðurhúsið svokallaða.
og fleiri rússar sem voru á einhverjum blöðrum af viti

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 10.okt 2011, 18:22
frá gambri4x4
Orginal rússahásingar þola alveg 38" veit svosem ekki með stærri dekk en það,,,,,

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 10.okt 2011, 23:22
frá Grímur Gísla
Hásingarnar þoldu ílla hraðakstur í gamladaga, Ég held að köggulinn í hásingarnar passi úr gyspi hásingunum,
Ef þú ert með rússa millikassann þá er auðvelt að setja volvó vél og kassa í rússann þar sem Volvó kassinn er mjög stuttur

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 17:17
frá gambri4x4

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 17:49
frá birgiring
Rússahásingar voru settar saman í miðjunni,þannig að drifið í þær er ekki í stökum köggli.

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 17:50
frá gaz69m
birgiring wrote:Rússahásingar voru settar saman í miðjunni,þannig að drifið í þær er ekki í stökum köggli.



og hvort finst þér það kostur eða galli

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 19:37
frá birgiring
Það er kostur að því leiti að þær veita minni mótstöðu í snjó og ófærð. Galli var hvað lítil olía var á þeim.Olían var mjög fljót að rakamettast og í fyrstu haustfrostum fóru oft drif í Rússajeppum.

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 19:54
frá Heiðar Brodda
sæll veit að drifin voru léleg í þeim en menn voru að setja dana 50 drif í staðinn

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 16.jan 2012, 19:56
frá gaz69m
Heiðar Brodda wrote:sæll veit að drifin voru léleg í þeim en menn voru að setja dana 50 drif í staðinn

voru þau drif að passa beint í rússan , ég er reyndar með stærri keisingu hjá mér þar sem ég er með hásingar undan frambygðum bíl

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 01.sep 2013, 00:45
frá Simbi
hlutföllin er þau sömu og í austin gipsi. þú getur tekið þanig kögul og soðið rússa rör á.Ég var með þannig afturhásingu undir mínu og skrúfaði 1/2" hné í áfilli gatið til að auka olíu magnið setti eins á framan og þá voru drifin til friðs .Þetta eru BESTU TORFÆRUTÆKI sem framleit hafa verið

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 01.sep 2013, 10:01
frá jongud
Nú veit ég ekki hvernig er að stilla inn drif sem eru sett saman í miðju en ég get ekki ýmindað mér að það sé auðvelt eða skemmtilegt.
Ég reif fyrir löngu öxul úr gamalli afturhásingu sem lá í reiðileysi uppi í sveit, var að redda henni og bremsuskál fyrir einn sem átti gamlan GAZ. Þetta eru bölvaðir tannstönglar með grófum 10-rillum inni við drif. Að vísu eru þeir á fljótandi hásingum að aftan en nafstúturinn er varla veigameiri en vatnsrör.

Hérna eru upplýsingar!
http://www.gaz69.org/gaz.html

Front axle load (empty): 860 kg (16.93 cwt.)

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 01.sep 2013, 14:28
frá sukkaturbo
Sælir drengir ég er búinn að eiga nokkra Rússa GAZ-67 eða húddara með blæju og með td: orginal flathedd vél og volvo b18 ford 6 cyl bronco og 6 cyl dodge og 318 dodge. á 33 og 36 og 38 og terrum og 44" dekkum. Allt fyrir ofan 36" dekkin er of stórt fyrir orginal rússa hásingarnar.Þær eru ekki sterkar og eru öxlar með 10 rillu deilingu og frekar grannir.Drifin úr frambyggða bílum eru með sterkari mismunadrif. Ekki mikið mál að stilla þessi drif þegar búið er að læra það og gera það einu sinni.Gott var að hækka tappan á kúlunni til að fá meiri olíu á drifin og sett var 1/2" hné til þess. Var með 33" dekkin á keðjum og góða skóflu.En hann dreif helling á 36" og hásingar héldu og var þá 6Cyl ford bronco vél en orginal rússa millikassinn. Einum Rússa var breitt og sett ég í hann volgan V-8 318 Dodge vél og dana 44 hásingar og Nospin og blæja auðvitað og alltaf orginal fjaðrir sem virkuð mjög vel. kveðja Guðni rússajeppa aðdáandi

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 20.nóv 2013, 18:37
frá hannibal lekter
En guðni rússinn okkar var nú lengi vel á 38" mödderum og það voru auðvitað kominn drif ú frammbigða bílnum

Re: hvað þola hásingarnar á rússajeppum

Posted: 20.nóv 2013, 19:05
frá sukkaturbo
Sæll Hannibal þá var líka pabbu þinn ökumaður á bílnum maður sem kunni til verka og var mjúkur keyrari og reyndi aldrei að reykspóla á honum á malbiki spólaði ekki einu sinni í snjó og var alltaf með grip og festi sig aldrei svo vitað sé. kveðja guðni