Síða 1 af 1
Rússar á klakanum
Posted: 12.mar 2010, 17:12
frá Phantom
Hér eru nokkrir öflugir rússar.
Ef einhver er með upplýsingar um þessa bíla þá væri gaman að fá það í þráðinn.
Einnig ef þið vitið um fleiri að smella inn myndum af þeim og auðvitað að láta alla rússaáhugamenn vita af spjallinu svo við getum deilt visku okkar.




Re: Rússar á klakanum
Posted: 12.mar 2010, 17:23
frá stebbi1
Ef mér skjatlast ekki er þessi þarna neðst bílinn hans Ómars Ragnarssonar, sem ég tel líklegt að sé staðsettur í Mývatnssveit núna. En einhverstaðar á ævi þessa bíls átti kennarinn minn Friðrik Friðriksson hann
Re: Rússar á klakanum
Posted: 12.mar 2010, 18:28
frá lukku.laki
sá efsti var í eigu óskars á steiná held að sonur hans jakob óli eigi hann núna
Re: Rússar á klakanum
Posted: 12.mar 2010, 18:39
frá Sævar Örn
Það stendur einn svona rússi við Tæki.is í Hafnarfirði. Og hefur staðið í nánast tvo mánuði óhreyfður.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 17.mar 2010, 00:54
frá Tandon
er búinn að eiga þennan í nokkur ár kanski ekki fallegur greiið :)

Re: Rússar á klakanum
Posted: 17.mar 2010, 11:17
frá joisnaer
þessi rauði með hvtíu blæjunni er alveg helvíti vígalegur. er hann í lagi í dag eða?
Re: Rússar á klakanum
Posted: 17.mar 2010, 12:18
frá stebbi1
Svo er einn svona á húsavík. veit ekki hver á hann.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 02.maí 2010, 18:17
frá gunnarja
Hér er nokkara myndir af rússajeppum, tek myndir af þeim fyrir félaga minn sem dreymir um að eignast svon tæki einhverntímann. Myndirnar eru á þessum link
http://hvammstangi.123.is/album/Default.aspx?aid=162513
Re: Rússar á klakanum
Posted: 02.maí 2010, 22:05
frá gthg
Glæsilegt! væri til í eitt stykki
Re: Rússar á klakanum
Posted: 04.maí 2010, 14:22
frá Phantom
Re: Rússar á klakanum
Posted: 19.maí 2010, 21:21
frá gunnarja
Nokkrir Rússajeppar sem ég hef myndað fyrir félaga minn sem hefur mikin áhuga á þeim.

Þessi var skólabíll í Eyjafirði á sínum tíma

Þessi er á Borðeyri

Þessi er í Borgarnesi

Sami bíll

Þessi og næstu 3 eru á Hólmavík.



Þessi og næsti eru í Svartárdal

Re: Rússar á klakanum
Posted: 20.maí 2010, 11:40
frá Einar
Re: Rússar á klakanum
Posted: 20.maí 2010, 12:54
frá Premium
Re: Rússar á klakanum
Posted: 20.maí 2010, 14:16
frá jeepcj7
Hérna er mynd af einum sem er á Hólmavík reyndar kominn á rover grind og með volvo í húddinu.

Re: Rússar á klakanum
Posted: 08.jún 2010, 21:13
frá Valdi 27
Heyrðu Gunnar. Hvað eru mörg ár síðan að þú tókst þessar myndir af rússunum sem eru í Svartárdalnum??
Re: Rússar á klakanum
Posted: 28.jún 2010, 17:32
frá gaz69m
hvar er þessi grind með hásingum og vél langar að forvitnast um hvort að hún er föl
Re: Rússar á klakanum
Posted: 01.sep 2010, 14:04
frá trausti
Þessi rauði með hvítu blæjunni (L-1331), er enn til. Hann var gerður upp á sínum tíma af Sigurgeir skólastjóra á Hellu og er hann enn í hans eigu. Það er 350 í húddinu og einhverjar dana eða ford hásingar.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 03.sep 2010, 22:13
frá gunnarja
Ég tók þessar myndir af Rússunum núna í vetur í Svartárdalnum.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 03.sep 2010, 23:03
frá gaz69m
held að þetta séu rússar sem voru auglýstir í bændablaðinu til sölu nílega
Re: Rússar á klakanum
Posted: 05.sep 2010, 20:54
frá Raggi B.
Nei það voru eflaust grænu frambyggðu Rússarnir (UAZ) hans Gvends-Bratta sem voru auglýstir þar til sölu í bændablaðinu núna fyrir ekki svo löngu síðan. Hann býr á Eiríksstöðum í Svartárdal, mér skildist að þeir væru seldir en ég sá þá nú enn við bæinn þegar ég var í útsýnisrúnti þar í dag í dalnum.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 06.sep 2010, 10:37
frá andrig
gunnarja wrote:Nokkrir Rússajeppar sem ég hef myndað fyrir félaga minn sem hefur mikin áhuga á þeim.

Þessi og næsti eru í Svartárdal
ég held að þessi standi á lóð hjá ömmu minni, en þakið á honum er hrunið eftir að mikill snjór féll á það af húsi sem hann stendur við.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 07.sep 2010, 20:00
frá naffok
Tveir frambyggðir standa í Haukadalnum rétt fyrir austan Geysi. Sýnast ekki falleir en kannski sæmilega heillegir til að sjá.
Kv Beggi
Re: Rússar á klakanum
Posted: 10.sep 2010, 13:17
frá gaz69m
vitið þið hver á gaz69 bílin sem er hjá vélsmiðjuni kofra skútuhrauni3. fallegur en breittur rússi þar á ferð með mynd af blöðru jeppa á hurðunum
Re: Rússar á klakanum
Posted: 11.sep 2010, 12:30
frá Stebbi
gaz69m wrote:vitið þið hver á gaz69 bílin sem er hjá vélsmiðjuni kofra skútuhrauni3. fallegur en breittur rússi þar á ferð með mynd af blöðru jeppa á hurðunum
Held að sá bíll hafi verið í eigu Ögmundar á Vorsabæ í Ölfusi frá því hann var nýr og þangað til kallinn dó. Eftir það fékk barnabarn hans bílinn og setti á 33". Örugglega fínt eintak þarna á ferð, kallinn keyrði hann í það minsta ekki hratt og örugglega aldrei uppúr 3ja gír þegar hann átti hann.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 11.sep 2010, 12:53
frá Sævar Örn
Sá bíll er búinn að standa þar sem hann stendur í hálft ár en stóð áður innar í skútahrauninu ábyggilega í ár eða tvö
Re: Rússar á klakanum
Posted: 11.sep 2010, 21:11
frá Raggi B.
Raggi B. wrote:Nei það voru eflaust grænu frambyggðu Rússarnir (UAZ) hans Gvends-Bratta sem voru auglýstir þar til sölu í bændablaðinu núna fyrir ekki svo löngu síðan. Hann býr á Eiríksstöðum í Svartárdal, mér skildist að þeir væru seldir en ég sá þá nú enn við bæinn þegar ég var í útsýnisrúnti þar í dag í dalnum.
Já nei þeir eru víst ekki seldir, fékk að vita það.
Re: Rússar á klakanum
Posted: 15.sep 2010, 17:02
frá gaz69m
hvernig ættli ég geti fundið eigendan að þessum rússa við kofra . einhverjar hugmyndir ?