Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

User avatar

Höfundur þráðar
gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá gislisveri » 09.okt 2010, 16:15

Langaði að deila þessu með ykkur: http://www.atonimpulse.com/Welcome_to_Aton_Impulse.html

Maður hefur séð myndir af svona áður en þetta er í fyrsta sinn sem ég sé þetta auglýst til kaups.
Ýmislegt merkilegt við kaggann, t.d. að þurrvigtin er aðeins 1460kg, mögulegt að fá úrhleypibúnað með honum o.fl.

Kv.
Gísli Sveri



User avatar

Höfundur þráðar
gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá gislisveri » 09.okt 2010, 16:18

Önnur skemmtileg staðreynd er að loftfjöðrun er staðalbúnaður, en vökvastýri aukabúnaður, ef ég skil þetta rétt. Góður, Rússi!
Mig langar að prófa svona græju.

User avatar

ofursuzuki
Innlegg: 270
Skráður: 31.jan 2010, 15:47
Fullt nafn: Björn Ingi Óskarsson
Staðsetning: Skagaströnd
Hafa samband:

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá ofursuzuki » 09.okt 2010, 19:10

Hér er smá umfjöllun um þessa græju http://strond.123.is/blog/month/200908/
sem ég tók saman fyrir vefsíðu sem ég sé um fyrir björgunarsveitina Strönd.
Björn Ingi Óskarsson
_____________________________
Nissan Patrol 260 38"
Suzuki SJ 410 Pickup 38" 1986 Seldur
Suzuki Vitara 33" 1993 R.I.P
Suzuki SJ 413JX 33" 1988 Seldur


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá steinarxe » 09.okt 2010, 21:05

hahaha snilldar græja:) Tóti Trúður bara mættur á svæðið!!!!:)


gaz69m
Innlegg: 665
Skráður: 10.mar 2010, 11:54
Fullt nafn: Guðmundur Árni sigurðsson
Bíltegund: gaz69m
Staðsetning: niður við sjó í flóanum flata

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá gaz69m » 09.okt 2010, 22:44

spurning um að skella sér á einn flott græja.
sé það framleit úr sovéskustáli þá langar mig að eignast það.

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá Sævar Örn » 09.okt 2010, 23:31

Mig langar að prufa svona dekk á íslenskum vegum og snjó, virðist virka vel.
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Höfundur þráðar
gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá gislisveri » 10.okt 2010, 15:25

Spurning hvernig dekkin haga sér á 90kmh, þó varla mikið verr en DC 44".

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá Kiddi » 10.okt 2010, 17:42

Eru menn strax búnir að gleyma frábærum áreiðanleika og gæða Lödunnar hehe

User avatar

Einar
Innlegg: 319
Skráður: 01.feb 2010, 00:32
Fullt nafn: Einar Steinsson
Staðsetning: Austurríki
Hafa samband:

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá Einar » 11.okt 2010, 04:57

Kiddi wrote:Eru menn strax búnir að gleyma frábærum áreiðanleika og gæða Lödunnar hehe

Það var með Lödu og aðra austantjaldsbíla að það var svo sem ekkert að bílunum eða hönnuninni, t.d var Lada Sport stórsniðug hönnun, þetta voru kannski ekki mest spennandi bílar á markaðnum en þetta gátu verið ágætis vinnujálkar og ódýrir voru þeir. Það sem hrjáði þá hins vegar var að það voru hræðilega mistækir verkamenn sem settu þá saman í bland við lélegt hráefni.
Ég man eftir að einn kunningi minn keypti sér Lada 1500 Station og keyrði hann mikið og ekkert sérstaklega varlega. Eftir þrjú ár og fullt af km hafði ekkert gefið sig í bílnum, hann var algjörlega vandræðalaus. Hann ákvað að endurnýja eftir þessi þrjú ár og af góðri reynslu keypti hann nákvæmlega eins bíl Lada 1500 Station (að vísu grænann í staðin fyrir rauðann). Sá bíll bilaði frá fyrsta degi og var aldrei til friðs.
Þetta var held ég það sem margir upplifðu með austantjalds bíla, ef kallarnir sem settu þá saman höfðu unnið vinnuna sína voru þetta góðir og áræðanlegir bílar, annars gátu þetta verið handónýtar tíkur, það var sem sagt svolítið happadrætti að kaupa þá. Kannski var þetta spurningu um hvað mikið af Vodka smiðirnir höfðu drukkið þann daginn :)

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Aton Impulse - Láðs og lagar jeppi úr Austri

Postfrá Kiddi » 11.okt 2010, 17:27

Þeir hafa þá að sjálfsögðu batnað með hverjum vodkasopanum!!!


Til baka á “GAZ og annað austantjalds”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 12 gestir