Síða 1 af 1
					
				bensín vél úr landróver ofaní rússa :(
				Posted: 22.sep 2010, 13:00
				frá gaz69m
				hversvegna voru menn að setja þungar landróver vélar í rússana 
251xxxxxx   Series IIA petrol 2286cc  7:1 CR
er semsagt komin með grind undir gazin minn :)  en ofaní henni var þessi  landróver bensín vél . veit allavega ekki betur en að þetta sé bensín miðað við númerið  sem er á blokkini þetta er 4 cylindra vél.
			 
			
					
				Re: bensín vél úr landróver ofaní rússa :(
				Posted: 22.sep 2010, 13:45
				frá jeepcj7
				Menn gerðu mikið af því að setja LR vélar í rússana en aðallega diesel vegna þess að rússinn kom ekki með diesel vélum og framboð á LR diesel vélum var rosalegt hér aður fyrr þegar 1-2 robbar voru á hverjum sveitabæ.
Þessar vélar úr rover eru nánast eins bensín og diesel það var semsagt hægt að færa olíuverkið yfir á bensínvélina með öllu sem tilheyrir og keyra á diesel.
			 
			
					
				Re: bensín vél úr landróver ofaní rússa :(
				Posted: 22.sep 2010, 15:59
				frá stebbi1
				Það ætti nú ekki að vera erfitt að skera úr um hvort að þetta sé bensín eða dísel, ef þetta er disel þá eru væntanlega spíssar og olíuverk, en ef þetta er bensín  er afskaplega líklegt að maður gæti fundið kertaþræði, kerti, háspennukefli og kveikjulok.
			 
			
					
				Re: bensín vél úr landróver ofaní rússa :(
				Posted: 22.sep 2010, 16:43
				frá gaz69m
				þetta er  bensín spurning um að flíta sér minna á morgnana við véla skoðanir .